Dagblaðið fréttir ýmislegt, en hvaðan???

Undanfarið hef ég lesið talsvert um persónulega hagi mína, starf Vinstri grænna og bæjarmálin í Mosfellsbæ í DV. Blaðið hafði t.d. af því spurnir að ég væri orðinn lóðareigandi í landi Helgafells og lóðina hafi ég látið skrifa á nafn konu minnar. Á annars mjög kurteisri blaðakonunni sem í mig hringdi mátti greinilega heyra að henni var brugðið að fá þær fréttir að ég hefði aldrei þegið neina lóð í landi Helgafells og því síður að ég ætti lóð sem væri skrifuð á nafn konu minnar.

Nýlega hafði blaðið einnig af því spurnir að hljómsveitin Sigurrós spilaði ekki fyrir umhverfisníðinga eins og t.d. Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Ágætis félagar mínir og nágrannar í Sigurrós kannast ekki við að hafa látið þessi ummæli falla. 

Í dag var frétt í blaðinu um að innan meirihlutans í Mosfellsbæ gætti óróleika og stafaði hann helst af miklum vandræðum mínum við að verja það fyrir baklandi mínu í VG að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna. (Skrýtið hvað þetta orðalag, að vera í stöðugum útistöðum við umhverfissinna minnir mig á bloggdólg sem lét talsvert að sér kveða um allnokkurt skeið á heimasíðu Varmársamtakanna.) Einnig kom fram að Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi legði hart að mér að sprengja meirihlutann í Mosfellsbæ og mynda nýjan með Samfylkingu og Framsókn.

Hvaðan koma svona "áreiðanlegar" fréttir í DV???????

Þar sem ég hef ekki sóst eftir því að leiðrétta þessar fréttir í DV er nú upplagt að gera það á þessum ritvelli, hæg eru heimatökin. Svandís Svavarsdóttir er ekkert að skipta sér af bæjarmálum í Mosfellsbæ. Samstarfið gengur vel í meirihlutanum. Starf Vinstri grænna hefur aldrei verið blómlegra í Mosfellsbæ og fjölskylda mín leikur á allsoddi þrátt fyrir að eiga ekki lóð í landi Helgafells.

Kær kveðja frá Kalla Tomm. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ji meira vesenið að eiga ekki þessa lóð Kalli ! Þú getur kannski reynt að hefja söfnun meðal fjársterkari bloggvina þinna ?

Ragnheiður , 23.10.2007 kl. 21:58

2 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Já, varaðu þig bara, Kalli minn. Nú hef ég fyrir satt að báðir ritstjórar DV séu fluttir í Mosó, líklega bara til að fylgjast með hvernig þú hagar þér heima og heiman!

Svo hittir maður mann og eins og þú veist eru sumir sögufróðari en aðrir. Og aldrei má góð saga gjalda sannleikans…

Góð kveðja

Sigurður Hreiðar, 23.10.2007 kl. 22:10

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ég hef aldrei skilið hvernig hægt er halda úti mörgum dagblöðum á Íslandi, hvað þá að vera með dagleg safarík hneyksli af "fræga" fólkinu. Það eru bara ekki nógu mörg hneyksli til að gera út á.

Benedikt Halldórsson, 24.10.2007 kl. 01:49

4 Smámynd: steinimagg

DV er nú snilldar blað það vita allir og með þessu framhaldi  ættir þú að komast á forsíðu Séð og Heyrt.

steinimagg, 24.10.2007 kl. 12:30

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæri kalli, þú ert greinilega þess virði að setja svona sögur í gang um, kannski er þetta ekki svo slæmt. það fer í raun allt eftir því hvernig þú tilfinningalega tekur þessu, það fólk sem setur sögur og ósannar sögur í gang, fær það oftast framan í sig aftur, svo ég er viss um að þetta verður þér allt í vil.

hjartans

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 24.10.2007 kl. 19:50

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Með lóðum skal land byggja  

Er DV ekki skammstöfun á ,,Dæmigerð Vitleysa'' 

Gangi þér annars allt í haginn í bæjarmálabransanum sem hinu daglega lífi.

Bestu kveðjur úr Kópavogi

Kjartan Pálmarsson, 24.10.2007 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband