Sjötug í sjöunda himni

Í Mosfellsbæ er byggð fremur lágreist enda hefur það verið markmið bæjaryfirvalda að halda henni þannig. Undir þessi sjónarmið tek ég og hef gert en ég hef heldur ekki farið leynt með þá skoðun mína að ég tel ekki rétt að útiloka glæsilegt háhýsi á vel völdum stað, enda skrifaði ég um þetta í leiðara Mosfellings fyrir nokkrum árum. Sá fjöldi af þriggja til fjögurra hæða blokkum, sem því miður virðist oft gleymast að huga nægjanlega vel að útliti, taka heilmikið pláss og hreinlega ræna einnig íbúum fjölda smærri bygginga mikilli útsýn.

Algengt er að sjá auglýstar íbúðir í fjölbýlishúsum fyrir 50 ára og eldri, ég get t.d. séð fyrir mér að sá aldurshópur gæti haft forgang með kaup á efri hæðum í slíku háhýsi. Auðvitað kunna all flestir að meta gott útsýni en ég held samt að það sé fyrst af einhverri alvöru þegar á efri ár er komið. Þá er meiri tími til þess að sitja út á svölum eða við stofu gluggann með kaffið og virða fyrir sér fallegu sveitina og nágrenni hennar. Svona bygging glæsilega hönnuð á allan hátt með góðri þjónustu á neðstu hæð er eitthvað sem ég get vel séð fyrir mér. Ég tel ekki rétt að það eigi einungis vera á færi þeirra allra efnuðustu að komast í slíkt hús á góðum stað eins og dæmin sanna t.d. í Reykjavík.

Hvað væri huggulegra en að sitja með gömlu sinni upp á sjöundu, fá sér púrtvín eða sherrý, virða fyrir sér víðáttuna og fara svo kl. 21 í hátíðarsalinn til að spila vist eða taka nokkur dansspor með gömlum sveitungum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Nú gerir mig bæði sárt og klæja, félagi Karl! Hvar ætlar þú að hafa þessa turna? -- Í annan stað: íbúðir sem sérstaklega eru auglýstar fyrir þá sem eru orðnir eitthvað plús (50+, 60+ 70+) hafa yfirleitt það eitt sér til ágætis að vera dýrari en allt sem dýrt er -- það er svo gott að plokka gamlingjana! Sbr. bara skerðingarákvæðin sem gera það að verkum að það margir fá ekki einu sinni grunnlífeyri TR þó þeir hafi borgað í sameiginlega sjóðinn alla ævi, bara af því þeir hafa verið svo grunnhyggnir að leggja til hliðar og koma sér um eigin sjóði til elliáranna. Þá fá þeir „fjármagnstekjur“ og það er voðalega ljótt!

Kv.

Sigurður Hreiðar, 18.10.2007 kl. 15:33

2 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Mikið tek ég undir þetta, þær blokkir sem hafa verið byggðar þarna eru afskaplega eitthvað flatar, og vantar miklu meiri lit í arkitekurinn þarna. Seinasta málssgreinin mjög góð.

Sólveig Hannesdóttir, 18.10.2007 kl. 18:06

3 Smámynd: Karl Tómasson

Kæri Sigurður Hreiðar.

Ég veit vel að þessar hugmyndir mínar falla fólki misvel og eflaust mörgum af mínum félögum í pólitíkinni. Ég held samt að það sé ákveðin þröngsýni og eitthvert prinsipp sem þar ræður för.

Afhverju þarf það að vera slæmt að reysa slík hús t.d. á þannig stöðum í íbúðahverfum að þau skyggi lítið sem ekkert á.?

Ég er á þeirri skoðun að sérlega vönduð og falleg bygging af þessu tagi, með vönduðum og fallegum frágangi utandyra þar sem nægt er rýmið sé eitthvað sem margir kunni að hugsa sér að búa í.

Þessar byggingar og íbúðirnar eru einmitt svo dýrar vegna þess að eftirspurn er mikil og því er það aðeins á fárra færi að eignast slíkar íbúðir. Ég vil frekar sjá eitt stórt og glæsilegt hús heldur en fjórar ljótar blokkir inn í miðjum hverfum.

Karl Tómasson, 18.10.2007 kl. 21:04

4 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Verð nú að segja það að ég er ekki sammála háhýsum.
Samanber Kópavogshúsið við Smáralind,það eina sem bjargar því er að það er í lægð. Er ekki hrifinn af stórum húsum sem eyðileggja útsýni og gerir sig sjálft að útsýni.

Halldór Sigurðsson, 19.10.2007 kl. 21:14

5 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Sæll, Kalli.

ég er ekki mjög hrifin af háum turnum og alls ekki í Mosfellsbænum sem er jú elskulegur lítill bær sökum þess hve dreifð og lágreist íbúðarhúsin eru.

Skoðum t.d. stóra ljóta blokkina í Hliðatúnshverfinu. Hverjum datt í hug að reisa slíkt í þessu fallegu hverfi? Og hver gaf leyfi til þess? 

Úrsúla Jünemann, 20.10.2007 kl. 11:31

6 Smámynd: Karl Tómasson

Heil og sæl Úrsúla.

Í Mosfellsbæ eru því miður nokkur dæmi um byggingar sem gera sig enganvegin, jafnvel á mjög áberandi stöðum, miðsvæðis og inn í miðjum hverfum. Slík dæmi er án vafa að finna í öllum bæjum, allt í kringum okkur.

Að mínu mati er blokkin í Hlíðartúni alls ekki ljótt hús, öðru nær, líflegur og fallegur arkitektúr en það má án vafa deila um staðsetninguna. Þegar húsum að t.d. þeirri stærðargráðu er plantað inn í mið íbúðarhverfi í massavís, jafnvel afskaplega litlausum og flatneskjulegum getur það bitnað all verulega á heildaryfirbragði hverfanna og um leið skyggt á litlu sætu húsin allt í kring.

Þess vegna velti ég því fyrir mér hvort ekki sé heppilegra að fækka slíkum húsum inn í miðjum hverfum, heldur frekar að hækka þau, vanda betur til þeirra í útliti og finna þeim betri staði þar sem þau skyggja ekki á litlu húsin og njóta sýn einnig betur sjálf með nægt rými allt í kring.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 20.10.2007 kl. 13:47

7 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Sunnudagur til sælu fyrir þig

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 21.10.2007 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband