lau. 6.10.2007
Hvaða stjórnmálamenn í Mosfellsbæ og Kópavogi þiggja mútur?
Í Blaðinu í dag 6. október, er viðtal við Snorra Frey Hilmarsson formann Torfusamtakanna.
Þar segir hann orðrétt:
Ég veit að verktakar hafa verið mjög rausnarlegir við ýmsa frambjóðendur, til dæmis í Mosfellssveit og Kópavogi. Ég veit einnig af frambjóðendum sem hafa neitað að taka við fé frá verktökum.Hverjir þeir eru mætti koma fram fyrir kosningar.
Ég tel að Snorri Freyr þurfi að útskýra þessi alvarlegu ummæli sín nánar þar sem að nú liggja allir frambjóðendur og sveitarstjórnarmenn í Mosfellssbæ og Kópavogi undir grun um að hafa þegið mútur.
Ljóst er að það þarf að krefjast svara um það hvort þessi ummæli eigi sér stoð í raunveruleikanum og mun ég beita mér fyrir því hér í Mosfellsbæ.Flokkur: Bloggar | Breytt 7.10.2007 kl. 23:36 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Karl Tómasson

Ég er 49 ára Mosfellingur. Eiginkona mín er Líney Ólafsdóttir, leikskólakennari. Við eigum tvö börn, Ólaf 23 ára og Birnu 13 ára. Hundarnir okkar tveir heita, Tryggur og Trýna. Áhugamál mín eru: fjölskyldan, tónlist, myndlist, smíðar og garðrækt. Ég er forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Efni
Tenglar
Mínar síður
- Mosfellsbær Heimasíða Mosfellsbæjar
- Mosfellingur Bæjarblaðið Mosfellingur
- Vinstri Græn Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Bloggvinir
-
Hulda Bergrós Stefánsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Bjarni Bragi Kjartansson
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Benedikt Halldórsson
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Brynjólfur Þorvarðsson
-
Hrannar Baldursson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Viðar Eggertsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eyþór Árnason
-
Fjarki
-
Baldur Fjölnisson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
gudni.is
-
Guðmundur H. Bragason
-
Guðmundur Rafnkell Gíslason
-
Gústav J. Daníelsson
-
Haukur Nikulásson
-
Heimskyr
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Sigga Hjólína
-
Hlynur Hallsson
-
HP Foss
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
JEA
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Bergur Thorberg
-
Þorkell L. Þorkelsson
-
Pétur Björgvin
-
Kristján Kristjánsson
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Valdemarsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Laugheiður Gunnarsdóttir
-
Linda Samsonar Gísladóttir
-
Helga Sveinsdóttir
-
Magnús Már Byron Haraldsson
-
Alfreð Símonarson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Markús frá Djúpalæk
-
Þráinn Árni Baldvinsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Mummi Guð
-
Myndlistarfélagið
-
Jón Svavarsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Paul Nikolov
-
Vilborg
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Huld S. Ringsted
-
Rósa Harðardóttir
-
Rúnar Birgir Gíslason
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Gammur drils
-
Matti sax
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Óskar V Kristjánsson
-
Guðmundur St. Valdimarsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Gunnar Ólafur Kristleifsson
-
Sóley Valdimarsdóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Sverrir Stormsker
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þrúður Finnbogadóttir
-
TómasHa
-
Halldór Egill Guðnason
-
Úrsúla Jünemann
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Guðfríður Lilja
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Aðalheiður Haraldsdóttir
-
Auðunn Hilmarsson
-
Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Haraldsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Dunni
-
Elísabet Sigmarsdóttir
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Halldór Baldursson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
hilmar jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Jack Daniel's
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Pétur
-
kreppukallinn
-
Leikhópurinn Lotta
-
Linda litla
-
Ólafur Th Skúlason
-
Páll Rúnar Elíson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
steinimagg
-
Sveinn Arnar Sæmundsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Þórður Björn Sigurðsson
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 458478
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er algerlega sammála þér í þessu, Snorri Freyr eða nokkur maður á að geta komið með svona athugasemdir án þess að klára söguna. Við erum að horfa upp á menn koma með alvarlegar ásakanir í garð einstaklinga og fyrirtækja undanfarið og þykjast svo getað gengið frá brosandi.
Ég vona Karl að þú standir við þetta og krefjist Snorra um svör. Þeir frambjóðendur sem liggja nú undir grun um ólöglegt athæfi eiga svo að fara fram á viðeigandi refsingu yfir Snorra ef orð hans verða dæmt ómerk.
Fyrir mér liggur þú og fleiri bæjarstjórnarmenn og konur í Mosfellsbæ og Kópavogi nú undir grun um að þyggja mútur þangað til Snorri hefur leyst frá skjóðunni.
Ekki getur þú eða aðrir verið ánægðir með það.
S. Lúther Gestsson, 6.10.2007 kl. 19:26
Undarlegt, þegar fjölmiðlar gubba út óskoðuðum fullyrðingum frá Pétri og Páli, án nokkurar skoðunar. Er hægt að segja bara hvað sem er í viðtölum og fá það byrt án nokkurar skoðunar? Íslensk blaða og fréttamennska siglir hraðbyri í þrot, með óvönduðum vinnubrögðum og ekki sýst óvönduðum einstaklingum sem telja sér allt heimilt í krafti frjálsrar fjölmiðlunar. Vona bara að þessi fullyrðing verði rakin alla leið og fengið á hreint hvort fótur er fyrir henni. Ef sattt reynist, er hér slæmt mál á ferðinni. Ef lygi, er Blaðið skeinipappír.
Halldór Egill Guðnason, 6.10.2007 kl. 23:55
Sæll Karl
Ég bar mig eftir því að lesa umrætt viðtal eftir að ég sá skrif þín hér. Ég verð að segja eins og er að þessi maður er á hálum ís eftir ummæli sín og það sem vekur hvað mesta athygli mína er ekki bara það sem hann segir heldur þær spurningar sem eftir sitja og eru þessar:
Hvernig veit maðurinn það sem hann heldur fram með slíkri vissu? Hvaðan fær hann upplýsingar sínar? Hver hefur veitt honum þessar upplýsingar svo áreiðanlegar að hann þori að bera þær á torg og hætta mannorði sínu fyrir?
Það er umhugsunarvert og kannski væri réttast að hann yrði látinn sitja fyrir svörum þar um. Ég sé ekki hvernig hann á að geta vitað þetta með slíkri vissu, þar sem hann býr í bænum og er formaður umhverfissamtaka þar. Kannski að tengsl séu á milli ummæla hans og umfjöllunar Varmársamtakanna um starfsemi Torfusamtakanna og það allt á sama deginum?
Björn Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 00:07
Ótrúleg lesning í blaðinu
Ólöf (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 02:00
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.10.2007 kl. 18:59
Ja Kalli minn ekki hef ég þegið mútir frá nokkrum manni hvorki Pétri né Páli eða hvaða nafni sem hann nefnist. Það er algjörlega óþolandi að fólk leyfi sér að skrifa slíkt, ég held að það sé rétt að við setjumst yfir þetta mál.
Herdís Sigurjónsdóttir, 7.10.2007 kl. 23:00
Við Mosfellingar eigum heimtingu á að fá að vita hvað þessi Torfumaður hefur fyrir sér í þessu efni.
Sigurður Hreiðar, 7.10.2007 kl. 23:25
Hvaða hvaða létu menn svona þegar Davíð Oddsson sagði að borið hefði verið á sig mútur, eða honum boðið slíkt. Ekki var það rannsakað neitt, og ekki kipptu menn sér mikið upp við það. Enda var verið að tala um götustráka í þvi sambandi. Eru politíkusar ekki meira og minna slíkir götustrákar líka ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2007 kl. 16:10
Mosi las þetta blaðaviðtal sem spjall þetta spinnst út frá. Þar voru settar fram skoðanir án þess að neinar skýringar hvað þá sannanir væru lagðar fram. Á venjulegu máli eru slíkar ásakanir nefndar DYLGJUR og eru ekki til fyrirmyndar nema síður sé.
Mjög mikilvægt er að þeir sem setja frá sér skoðanir geri sér grein fyrir því að í réttarríki eins og Íslandi má búast við að vera gerður ábyrgur fyrir því sem maður lætur frá sér fara. Jafnvel þó maður segi satt getur bakað refsiábyrgð sé tilgangurinn að særa eða meiða æru þess sem orðin beinast til. Jafnvel aðferðin til ærumeiðingar skiptir ekki máli.
Ein skemmtilegasta doktoritgerð íslensks doktors er rit Gunnars Thoroddsen sem hann nefndi Fjölmæli (1967). Það rit er óvenjulega vel ritað og víða leynist glettnin bak við grafalverlega lögfræði doktorsins. Mosi mælir eindregið með að allir sem hyggjast meiða æru annarra, að kynna sér þetta rit. Reyndar er Fjölmæli ekki kennslubók í ærumeiðingum heldur skýrir það nákvæmlega um hvað þetta er í raun og veru alvarlegt mál að meiða æru annars manns.
Aðferð til ærumeiðinga getur tekið á sig ýmsar myndir. Doktor Gunnar rekur dómsúrlistanir bæði innlendar og erlendar. T.d. var einum gróðabrallara sendir 30 smápeningar í ómerktri sendingu. Með mikilli þrautseigju tókst þó að finna út hver sendandinn var og með tilvísuninni til 30 silfurpeninga Júdasar þótti fullframning ærumeiðingar fullsönnuð.
Í einu máli reyndi á tónlist. Söngflokkur og hljóðfæraleikarar tóku sér stöðu utan við hús þekkt okurkarls í erlendri borg og sungu og spiluðu hátt og snallt alkunnugt þjóðlag sem fjallaði um hófsemd og heiðarleika: Über immer Treu und Redlichkeit.... Sá skildi sneiðina sem að var stefnt og gat auðveldlega sýnt réttinum fram á að þetta hefði verið gert til að móðga sig (Fjölmæli 174).
Hér eru aðeins örfá dæmi nefnd.
Svona getur hrammur laganna gripið óforvandis nánast kverkataki um þann sem fremur einhvern verknað sem kann að orka tvímælis. Þar sem um æru manns er að ræða, ber að sýna fyllstu varkárni.
Mosi hvetur til ýtrustu varkárni enda eru hvers konar móðganir ekki neinum til framdráttar og síst þeim sem vilja gjarnan gera lítið úr öðrum.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 9.10.2007 kl. 18:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.