Bannað að reykja undir stýri

Sennilega lýður ekki að löngu þar til reykingar verða bannaðar undir stýri. Nýjustu fregnir herma að bretar hyggist ríða á vaðið. Ég man þá tíð að börn sátu óbundinn í aftursætinu, eða stóðu á milli framsætanna í reykjamekki. Það þótti nú ekki tiltökumál í þá daga. Jafnaldri minn og góður vinur frá því í gamladaga þurfti meira að segja stundum að troða í pípuna fyrir pabba sinn í lengri ferðum.

Erum við ekki stundum á réttri leið?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Jú er ekki sjálfsagt að banna allt sem er varhugavert hafi það ekki þegar verið sungið í bann?

Reykingar á almannafæri rétt eins og sitt hvað fleira?

Mosi er fylgjandi víðtæku reykingabanni.

Guðjón Sigþór Jensson, 28.9.2007 kl. 18:31

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Við erum svo vel upplýst í dag að við skiljum hvað skeður ef maður er ekki með öryggisbeltið spennt við ákeyrslu. Mér finnst að fólk eigi að einbeita sér við aksturinn, en ef það á að banna reykingar... þá finnst mér að það eigi að banna samlokuát, drekka kók osfr.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2007 kl. 18:41

3 Smámynd: Halla Rut

Hver maður ætti að sjá sinn sóma í því að einbeita sér að akstri er hann er undir stýri.  Það er mikil ábyrgð að keyra bíl. Og með þessum orðum biðst ég afsökunar á öllum þeim skiptum sem ég hef sjálf ekki farið eftir þessum tilmælum mínum.

Halla Rut , 28.9.2007 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband