Það er erfitt að gera einfalda hluti vel

Bítillinn Paul Mc Cartney sagði einu sinni að það væri erfiðara að semja einfalt og gott lag en flókið.

Ég má til að skella inn einu slíku frá einum af mínum uppáhalds hljómsveitum. Þetta er eitt dæmi um það sem bítillinn sagði, algjört meistaraverk í einfaldleika sínum. Eruð þið ekki sammála?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Algerlega.

S. Lúther Gestsson, 23.9.2007 kl. 00:44

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Kalli.

Jú sannarlega.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.9.2007 kl. 00:47

3 Smámynd: Jens Guð

  Bítlarnir Paul og John öttu kappi sín á milli á tímabili við að semja lög með framandi (lítið notuðum) hljómum.  En báðir færðu sig þó aftur að einfaldleikanum þegar fram liðu stundir.  Working Class Heroeftir Lennon - sem að núna er vinsælt með Green Day -  er að uppistöðu til 2ja hljóma lag (E,  A). 

  CCR - eða réttara sagt John Fogerty - var og er snillingur einfaldleikans.  Proud Maryer bara 2ja hljóma lag (E,  A).  Og mörg frægustu lög CCR eru 3ja hljóma.

  Þegar ég var sem mest í spilamennsku á áttunda áratugnum var einmitt svo þægilegt að "covera" CCR vegna þess hvað lögin voru/eru einföld.

  Einn allra merkasti söngvahöfundur sögunnar,  Woody Guthrie,  sagði að þegar 4ði hljómur væri kominn til sögu væru menn komnir út í sýndarmennsku. 

  Margir af bestu lagahöfundum rokksins hafa stúderað lagasmíðar Woodys og lært margt gagnlegt.  Mér nægir að nefna Brúsa Springstein,  U2, Bubba og Megas. 

Jens Guð, 23.9.2007 kl. 01:10

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að í öllum þeim hljómsveitum sem ég var með í hafi þetta lag verið á lagalistanum.  Enda alveg frábært stuðlag.  Gengur endalaust.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2007 kl. 10:50

5 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Og Midnight Special ? Alger snilld það lag

Halldór Sigurðsson, 23.9.2007 kl. 13:54

6 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

@ Jens - Hrikalega held ég að það yrði hryllilegt að heyra Working class hero spilað í E og A... en kannski átti Jens Guð við hljómana  E moll og D?

Og hvað endemis bull er það svo að Proud Mary sé 2ja hljóma lag? Og þar að auki spilaði CCR það í D en ekki E og svona mætti lengi telja.

En sammála Kalla með það að einfaldleikinn er oft bestur.

Þorsteinn Gunnarsson, 23.9.2007 kl. 14:41

7 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Klassík! Hlakka til að heyra nýju John Fogerty plötuna sem er að koma út 8 október næstkomandi. Hún heitir "Revival" og ég gæti trúað að hann sé að vitna í fyrrverandi sveit sína :-)

Kristján Kristjánsson, 23.9.2007 kl. 20:27

8 Smámynd: Jens Guð

 Æji,  Þorsteinn.  Ég ruglaði öðru lagi saman.  Working Class Hero er spilað í Am og G.  Svo kemur að vísu smá D á einum stað undir lokin. 

  Ég nenni ekki að leita að bókinni minni þar sem að Proud Mary er gefið upp í E og A.  Mér gengur vel að glamra það í þeim hljómum. 

  Halldór,  ég tek undir að Midnight Specials sé snilld hjá CCR.  Gamall slagari frá Leadbelly. 

  Hjördís,  ég veit ekki hvaða meining liggur að baki textans í Proud Mary.   

Jens Guð, 24.9.2007 kl. 01:51

9 Smámynd: Jens Guð

  Til gamans/fróðleiks:  Vissuð þið að John Fogerty sat inni á dönsku geðveikrahæli í lok áttunda áratugarins?

Jens Guð, 26.9.2007 kl. 02:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband