Vellíðan í marga daga á eftir

Þarna er lausnin fundin, loksins. Hvern dreymir ekki um vellíðan í marga daga á eftir góðri líkamsrækt í hvaða formi sem hún er? Fram að þessu hafa flestir talið það gott að finna muninn í einhverja klukkutíma. Nú er bara að skella sér beint út í djúpu eða djúpa og byrja að synda.

Samkvæmt reyndum sjósunds mönnum er um margra daga sælu að ræða eftir góðan sprett.

Á forsíðum allra blaða í dag voru myndir af harðduglegu sjósundsfólki sem þreytti Viðeyjarsund í gær. Hátt í 40 manns tóku þátt.

Nú er bara að endurtaka leikinn að ári og fá í það minsta 100 þátttakendur. Ég skal vera á bátnum sem togar upp þá sem eru að drukkna, frjósa úr kulda eða drepast úr hræðslu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það er gott að stunda sjóböð, en ekki innan um þennan gaur

Halldór Egill Guðnason, 31.7.2007 kl. 15:28

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Tek undir með Hjördísi, ég skal vera á bátnum og hvetja þig kalli minn   ...... go Kalli go.........

Herdís Sigurjónsdóttir, 31.7.2007 kl. 16:24

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég yrði allavega ein af þeim sem væri að drukkna...

Jóna Á. Gísladóttir, 31.7.2007 kl. 20:10

4 Smámynd: Karl Tómasson

Kæru bloggvinir.

Það hefur engum tekist að sanna það fyrir mér að þessi undurfargra ófreskja virði einhverjar sjómílur eða landamæri.

Svo eru nú líka fleirri furðuskeppnur í sjónum en þessi, svona rétt eins og á þurru landi.

Bestu kveðjur frá K. Tomm. 

Karl Tómasson, 31.7.2007 kl. 20:43

5 Smámynd: Karl Tómasson

Sennilega minni líkur á að hún virði landamæri.

Karl Tómasson, 31.7.2007 kl. 20:47

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Rosalega flott myndskeið.  Svo má líka koma og fara í Mýrarbolta hér á Ísafirði.  um 100 manns búnir að skrá sig þar.  Það kostar örugglega nokkrar kalóríur, næsta víst. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.8.2007 kl. 09:53

7 Smámynd: HP Foss

Sennilega hefur það verið draumur lágvaxna Karsins að vera HáKarl....

Bwahahahahahahaaaa................æ æææ.......

HP Foss, 1.8.2007 kl. 16:22

8 Smámynd: HP Foss

Krítar? Það er endalaust flakk á þér kerling.  Var ekki nóg handa þér að anda að þér Síðuloftinu?

HP Foss, 1.8.2007 kl. 16:24

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Getur þú verið í bátnum á Austari Jökulsá og tosað mig uppí ?

Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband