Í dag, á degi íslenskrar náttúru var hreint stórkostlegt að hlýða á ræðu Ómars Ragnarssonar sem dagurinn er og verður alltaf kenndur við. Þvílík ræða og einlægnin í henni hjá honum var einstaklega áhrifarík. Ómar vitnaði mikið í ræðu sinni í Jónas Hallgrímsson og ljóð hans, Gunnarshólma og hversu mikill frumkvöðull Jónas var og það eru vissulega orð að sönnu. Ómar okkar kæri, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir land okkar og þjóð. http://dagskra.ruv.is/ras1/4587953/2011/09/16/
Gunnarshólmi Skein yfir landi sól á sumarvegi, og silfurbláan Eyjafjallatind gullrauðum loga glæsti seint á degi. Við austur gnæfir sú hin mikla mynd hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar í himinblámans fagurtærri lind. Beljandi foss við hamrabúann hjalar á hengiflugi undir jökulrótum, þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar. En hinum megin föstum standa fótum, blásvörtum feldi búin, Tindafjöll og grænu belti gyrð á dalamótum. Með hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll, horfa þau yfir heiðarvötnin bláu, sem falla niður fagran Rangárvöll, þar sem að una byggðarbýlin smáu, dreifð yfir blómguð tún og grænar grundir. Við norður rísa Heklu tindar háu. Svell er á gnípu, eldur geisar undir. Í ógna djúpi, hörðum vafin dróma, skelfing og dauði dvelja langar stundir. En spegilskyggnd í háu lofti ljóma hrafntinnuþökin yfir svörtum sal. Þaðan má líta sælan sveitablóma, því Markarfljót í fögrum skógardal dunar á eyrum. Breiða þekur bakka fullgróinn akur, fagurst engjaval þaðan af breiðir hátt í hlíðarslakka glitaða blæju, gróna blómum smám. Klógulir ernir yfir veiði hlakka, því fiskar vaka þar í öllum ám. Blikar í lofti birkiþrasta sveimur, og skógar glymja, skreyttir reynitrjám. Þá er til ferðar fákum snúið tveimur, úr rausnargarði háum undir Hlíð, þangað sem heyrist öldufalla eimur, því atgang þann ei hefta veður blíð, sem voldug reisir Rán á Eyjasandi, þar sem hún heyir heimsins langa stríð. Um trausta strengi liggur fyrir landi borðfögur skeið, með bundin segl við rá, skínandi trjóna gín mót sjávar grandi. Þar eiga tignir tveir að flytjast á, bræður, af fögrum fósturjarðar ströndum og langa stund ei litið aftur fá, fjarlægum ala aldur sinn í löndum, útlagar verða, vinar augum fjær. Svo hafa forlög fært þeim dóm að höndum. Nú er á brautu borinn vigur skær frá Hlíðarenda hám, því Gunnar ríður atgeirnum beitta búinn. Honum nær dreyrrauðum hesti hleypir gumi, fríður og bláu saxi gyrður, yfir grund. Þar mátti kenna Kolskegg allur lýður. Svo fara báðir bræður enn um stund. Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti. Kolskeggur starir út á Eyjasund, en Gunnar horfir hlíðarbrekku móti. Hræðist þá ekki frægðarhetjan góða óvina fjöld, þó hörðum dauða hóti. "Sá ég ei fyrr svo fagran jarðargróða, fénaður dreifir sér um græna haga, við bleikan akur rósin blikar rjóða. Hér vil eg una ævi minnar daga alla, sem guð mér sendir. Farðu vel, bróðir og vinur!" - Svo er Gunnars saga.
- - -
Því Gunnar vildi heldur bíða hel en horfinn vera fósturjarðar ströndum. Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél, fjötruðu góðan dreng í heljar böndum. Hugljúfa samt ég sögu Gunnar tel, þar sem ég undrast enn á köldum söndum lágan að sigra ógnabylgju ólma algrænu skrauti prýddan Gunnarshólma. Þar sem að áður akrar huldu völl, ólgandi Þverá veltur yfir sanda. Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll árstrauminn harða fögrum dali granda. Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda. En lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.
|
Athugasemdir
Gott og vel Karl Tomasson forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, gleymdu því ekki að þessi Guð þinn Ómar Ragnarsson er einn af þeim sem samþykktu að framselja fullveldi Islands til Þyskalands. Það gæti farið svo að islendingar verði hraktir til fjalla af óvinveittum þjóðflokki, með annað tungumal og þjóðfána sem hefur sest að á Islandi og fer sínu fram með annað tungumál og þjóðfána. Reyndu að virða sjálfstæðisbaráttu þjóðar þinnar sem gaf þér líf. Það er ekki nóg að vitna í þjóðskáld. Jónas Hallgrímsson hefði aldrei samþykkt ævarandi ósjálfstæði Islands til þýska stórríkisins.
Björn Emilsson, 17.9.2011 kl. 05:41
Gaman sjá að þú ert vaknaður til lífsins aftur, Karl.
Og gengur í það með hetjuskap að skrifa upp allan Gunnarshólma Jónasar. Þann ættjarðaróð allan lét hann afi þinn mig læra meðan mér var enn ósprottin grön og svei mér sem ég kann ekki bara þónokkra kafla úr honum enn!
En meðal annarra orða: Er merking hringtorganna alveg dottin upp fyrir? Reykjavík hefur hent hugmyndina á lofti og hefur merkt öll sín torg. Ég þurfti að vísa manni (kvenkyns) til vegar hingað heim til mín nýlega. Það varð að löngu máli. Hefði ekki verið munur að geta bara sagt: næsti afleggjari til hægri eftir að þú ferð í gengum Skarhólatorg?
Sigurður Hreiðar, 20.9.2011 kl. 12:26
Heill og sæll Sigurður Hreiðar. Alltaf gaman að heyra frá þér.
Það eru komnar að ég held örugglega merkingar á einhver torg, ég geng í málið að kanna þetta nánar.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 23.9.2011 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.