Sjúkralið og tækjabíll á leið á slysstað

Ég er oft hugsi yfir fréttaflutningi í fjölmiðlum þegar sagt er frá alvarlegu slysi og staður og stund tilgreint aðeins nokkrum mínútum eftir slysið.

Samanber, mjög alvarlegt bílslys varð á Hellisheiði um kl: 16:00 í dag, sjúkralið og tækjabíll slökkviliðsins er á leið á slysstað.

Hver er tilgangurinn með slíkum fréttaflutningi?

Einhverjir hlustendur slíkra frétta vita jafnvel af nánum ættingja á þessari leið og á þeim tíma sem tilgreindur er.

Eins og gefur að skilja fyllast aðstandendur miklum kvíða, ótta og ónotum fyrir vikið.

Í dag var fréttaflutningur af þessu tagi, oft sem áður, í fjölmiðlum.

Hver er tilgangurinn???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

tilgangurinn er að láta fólk vita af slysi.. óþarfa viðkvæmni í þér í dag

Óskar Þorkelsson, 16.1.2011 kl. 08:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála þér Karl, það þarf að fara varlega í slíkan fréttaflutning hann þjónar í raun engum tilgangi nema þeim að vera fyrstur með fréttirnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2011 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband