Trommusettið mitt gamla og sögufræga

Fyrir margt löngu síðan, eða brátt 30 árum, keypti ég gamalt Rogers trommusett. Í þá daga var ég ekkert að spá í það hvaðan settið kom eða hver hefði átt það. Mér einfaldlega leist vel á gripinn og langaði að eignast hann.

Þetta gamla hljóðfæri hefur mér alltaf þótt afskaplega vænt um og aldrei látið mér detta í hug að selja, einhverra hluta vegna. Vimmi, fyrsti rótari Gildrunnar, hefur alltaf elskað þetta sett og geymt það fyrir mig og það sem meira er hann hefur haft það sem stofustáss á heimili sínu.

Nú hefur það komið á daginn að þetta er fyrsta sérinnflutta trommusett Péturs Östlund og Hljómanna. Já það kann að virka furðulegt að ég hafi ekki haft grun um fortíð trommusettsins en svona er það nú bara.

Allt upphófst þetta í síðustu viku er, Halldór Lárusson, ein mesta fróðleiksnáma um íslenska trommuleikara og trommur benti mér á að þarna ætti ég sennilega einstakan safngrip.

Ég hef nú bæði sett mig í samband við Gunnar Þórðar og Pétur Östlund og þeir ljómuðu báðir þegar ég sagði þeim frá gamla Rogers trommusettinu mínu, sem þeir eiga greinilega báðir gamlar og góðar minningar frá.

Hér að neðan má sjá mynd af Hljómunum og Pétri Östlund við settið.

Seinna mun ég setja inn mynd af því eftir að ég eignaðist það. Ég þarf að leita í gömlum möppum.

Einnig er hér að neðan slóð á Myndband með Pétri Östlund að spila með gömlum snillingi, einum af mörgum sem hann hefur spilað með.

Pétur Östlund

 

 

<object width="480" height="385"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Bum3aqkf9yo?fs=1&amp;amp;hl=en_US"></param><paramname="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/Bum3aqkf9yo?fs=1&amp;amp;hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="480" height="385"></embed></object>


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er ekki alveg viss en ég held að Theodór Hallsson, forstöðumaður Námsflokka Hafnarfjarðar, hafi átt þetta sett um tíma og hann sá alltaf eftir að hafa selt það.  Þú skalt prófa að hafa samband við Theodór og fá sögu settsins beint í æð...........

Jóhann Elíasson, 26.9.2010 kl. 19:50

2 Smámynd: Karl Tómasson

Þetta er nú sannarlega að verða skrítinn dagur.

Eftir einstaklega skemmtileg samtöl bæði við Gunnar Þórðar og Pétur Östlund í dag um gamla Rogers trommusettið, hefur ýmislegt komið í ljós.

Jóhann Elíasson, kærar þakkir fyrir innlegg þitt til mín, þú hefur sannarlega uppljóstrað sannleikanum um settið.

Ég tók þig á orðinu og hringdi í Theódór Hallsson og átti við hann gott og skemmtilegt samtal, hann vissi allt um hljóðfærið og sögu þess enn og benti mér á að hringja í bróður sinn núverandi eiganda þess, Brynleif, sem ég og gerði.

Þá kom á daginn að að Brynleifur gaf syni sínum hljóðfærið en það er engin annar en Benni Brynleifs, trommari.

Ég hringdi í Benna, trommuleikarann geðþekka og hann sagði mér að settið væri í öruggri vörslu sinni. Ég óskaði Benna að sjálfsögðu til hamingju með það enn neitaði því ekki að þetta væru ekki bestu tíðindi dagsins hjá mér.

Það allra skondnasta við þetta allt saman er að á morgun, mánudag eignast ég gamla rauða Yamaha settið hans Benna.

Svona getur nú þetta allt verið skrítið.

En eftir stendur hver átti gamla Rogers settið mitt???

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 26.9.2010 kl. 22:23

3 identicon

Já, þetta var sérkennilega skemmtilegt allt saman Kalli.

Við verðum að bera saman þessi Rogers sett okkar, það er alveg á tæru. 

heyri í þér 

kv Benni

Benedikt Brynleifsson (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 22:38

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Skemmtileg frásögn. Víða leynast fjársjóðir!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 30.9.2010 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband