Þá var hlegið

ÖgmundurÞegar Ögmundur Jónasson spurði úr ræðupúlti alþingis fyrir nokkrum árum síðan hvort eðlilegt gæti talist að menn hefðu milljónatugi í mánaðarlaun á Íslandi, var mörgum hlátur í huga.

Jú  þetta voru allt snillingar, útrásarsnillingar, margverðlaunaðir menn sem áttu allt gott sitt skilið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maður sér það alltaf betur og betur eftir því sem frá líður hve þjóðfélagið var sjúkt. Það var flokkað undir "öfund" að finnast þessi laun allt of há.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 12.5.2010 kl. 00:37

2 Smámynd: Karl Tómasson

Já kæri Grefill það eru orð að sönnu. Þetta var sérstakt ástand og líklega eins og þú segir öfundarmerki að tjá sig um.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 12.5.2010 kl. 00:45

3 Smámynd: Bernharð Hjaltalín

Sælir drengir,ég er einn af þeim sem vil sjá Ögmund á Bessastöðum, en ég er

ruglaður þar sem ég tel þessi læti núna um handtökurnar stafa af Jóni Gnarr

og væntanlegum framboðum um allt land,fjórflokkarnir kveða svona fólk í

kútinn.

Bernharð Hjaltalín, 12.5.2010 kl. 07:50

4 Smámynd: Friðrik Jónsson

Það virkar enn mjög sjúkt og við þurfum Ögmund í sterka stöðu sem fyrst aftur.

Friðrik Jónsson, 12.5.2010 kl. 11:29

5 Smámynd: Haukur Gunnarsson

Einn sem tók þátt í græðginni var Steingrímur J. formaður VG, þegar hann samþykkti eftirlaunalögin og græddi miljónir á því.

Haukur Gunnarsson, 12.5.2010 kl. 15:00

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sammála þér Kalli.

Varðandi fullyrðingu Hauks Gunnarssonar hér næst að ofan þá er því til að svara að Steingrímur var fjarverandi þegar til atkvæðagreiðslu kom í þessu másli sem hann vísar til. Í umræðum lýsti Steingrímur sig alfarið á móti þessu frumvarpi.

Hvers vegna menn eru að núa Steingrími um nasir að hafa tekið þátt í þessari spillingu er óskiljanlegt öðru vísi að menn eru svo siðlausir að vilja draga sem flesta með sér niður í spillingasvaðið.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 12.5.2010 kl. 19:52

7 identicon

Af hverju var hann fjarverandi, af því að hann þorði ekki. Hann var búinn að samþykkja frumvarpið í viðræðum milli flokkana. Hljóp svo í felur þegar hann áttaði sig á hvað þetta var óvinsælt.ER það eitthvað viðkvæmi að hann þáði nokkrar miljónir vegna lagana, af hverju má ekki benda á það að vinstri menn eru ekkert síðri í að hygla sjalfum sér en aðrir.

haukur gunnarsson (IP-tala skráð) 12.5.2010 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband