Það er búið að vera svooooo gaman hjá okkur

Við gömlu félagarnir í Gildrunni undirbúum nú af krafti tónleika okkar sem haldnir verða í Hlégarði þann 1. maí.Eins og ég hef skrifað um hér áður eru þeir haldnir í tilefni af 30 ára samstarfsafmæli okkar.

Æfingar ganga vel og er óhætt að segja að góð og einstök stemning sé í okkur gömlu rokkurunum. Mikið óskaplega er gaman að hitta gömlu félagana og vinina og rifja upp gamla tíma og æfa öll gömlu lögin sem eiga svo stórt pláss í lífi manns.

Það verður gaman að sjá ykkur í Hlégarði 1. maí. 

Hér læt ég eitt gamalt og gott fylgja með þessari færslu minni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er klárlega mitt uppáhaldslagið með Gildrunni. Andvökunætur.

Hlakka til að mæta í Hlégarð á Verkalýðsdaginn.

Hilmar Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband