Rokk og ról í Mosó

Það ríkir mikil stemning í Mosó þessa dagana. Allt stefnir í metaðsókn á þorrblótið og Gildrutónleikarnir verða svakalegir.

Hvort komandi bæjar- og sveitastjórnakosningar eigi þátt í þessum þorrablóts og rokkanda sem nú ríkir í bæjarfélaginu skal ósagt látið. 

Við þekkjum það samt flest, að frambjóðendur láta jafnan sjá sig á slíkum mannamótum, rétt eins og öðrum, á fjögurra ára fresti.

Undirbúningur fyrir endurkomu Gildrunnar og tónleikana í Hlégarði stendur nú sem hæst og allt gengur eins og í sögu.

Ljóst er að öllu verður til tjaldað og tækjabúnaðurinn og stælarnir verða slíkir að annað eins hefur ekki sést í Hlégarði, hvorki fyrr né síðar.

Sjáumst hress á blótinu

þorri2 (2)

Eitt gamalt og gott með Gildrunni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Bragi Guðlaugsson

Það verður gaman á Þorrablótinu það er víst ábyggilegt. Ég er samt sannfærður um að það verður flugeldasýning þegar Gildran kemur saman aftur. Það er ótrúlegt hvað það er alltaf gaman í Mosfellsbæ.

Kveðja,

Rúnar Bragi

Rúnar Bragi Guðlaugsson, 21.1.2010 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband