Ógleymanlegur kall

Um jólin var sýnd í sjónvarpinu, skemmtileg og fróđleg heimildarmynd, um listamanninn Dieter Roth, eftir Hilmar Oddsson.

Roth

Um ţađ leyti sem ég var ađ ljúka mínu verklega námi í bókbandi, sem hefur veriđ í kringum 1985, skall á verkfall bókagerđamanna. Ţađ varđ til ţess ađ fyrirtćkiđ sem ég lćrđi hjá, bókbandiđ Arnarfell, ţurfti eins og önnur í prent- og bókbandsgeiranum ađ stöđva alla vinnu.

Roth 3

Ég, sem nemi, mátti hinsvegar vinna og var ţví um tveggja vikna skeiđ eini starfsmađur fyrirtćkisins, enda eini nemi ţess á ţeim tíma. Skömmu áđur en verkfalliđ skall á, kom til okkar spennandi verkefni, sem var ađ binda inn bók, í fáum eintökum, eftir listamanninn, Dieter Roth. Nú voru góđ ráđ dýr, ţví listamađurinn var búinn ađ gera ráđ fyrir afhendingu bókarinnar frá okkur fullklárađri á tilsettum tíma rétt áđur en verkfalliđ skall á.

Ég fékk ţví ţađ verkefni ađ klára bókina fyrir Dieter á međan verkfalliđ stóđ yfir. Ţessir dagar eru mér ógleymanlegir, karlinn kom hvern dag og vakti yfir mér, nemanum á međan ég klárađi bókina. Hann var afar viđfelldin, skemmtilegur og uppbyggjandi.

Mér er minnisstćtt ađ einn daginn sem hann kom, ţá var ég ađ mála tröppurnar í stigaganginum.  Eins og gengur er oft málađ í sama lit og sigaţrepinn c.a. 10 cm sóplisti fyrir ofan hvert ţrep og niđur međ hverju ţrepi. Ţar sem ég var bćđi án málningarteyps og í ákveđinni tímaţröng vegna bókar Dieters, ákvađ ég ađ mála sóplistann fríhendis niđur allan stigann og vera fljótur ađ.

Ég málađi ţví allrahanda munstur niđur međ stiganum, til ađ lítiđ bćri á skekkjum. Flest líktust ţau einhverskonar öldugangi nema eitt ţeirra sem skar sig lúmskt úr. Ţađ var tippiđ fína, sem átti ađ vera smá djók hjá mér, ungum nemanum, sem seinna átti eftir ađ vekja mismikla lukku ţegar vinnufélagarnir mćttu til vinnu. Eftir ţessu tók Dieter srax og hafđi gaman af.

Roth 1

Viđ áttum saman marga skemmtilega daga í bókbandinu og frá ţeim tíma er hann mér algerlega ógleymanlegur og alltaf í miklu uppáhaldi.

Dieter gaf mér ađ verki okkar loknu eina bók sem ég held mikiđ uppá.

Rúmum tuttugu árum síđar hitti ég hann aftur, Ţá kom hann ásamt fjölda fólks á veitingastađinn okkar, Álafoss föt bezt í Álafosskvosinni.

Dieter var einstakur og ógleymanlegur. 


Bloggfćrslur 9. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband