KK er einstaklega skemmtilegur og fróðlegur í morgunútvarpinu

KK

Undanfarnar vikur hef ég hlustað á Kristján Kristjánsson (KK) í morgunútvarpinu á rás 1.  Það er einstaklega gaman að heyra hversu vel hann undir býr sig fyrir hvern þátt og er mikil fróðleiksnáma að hlýða á hann.

Kristján kynnir hvert lag og alla tónlistarmenn sem hann flytur lög eftir í þættinum af mikilli samviskusemi og stóískri ró. Þetta er sérstaklega gaman og án vafa fyrir alla tónlistaráhugamenn. Kristján fer um víðan völl og er algerlega óútreiknanlegur í þætti sínum. Ég hlakka alltaf jafn mikið til að hlýða á hann í útvarpinu.


9857

Tæpar tíu

Maður er gersamlega búinn að missa allt verðskyn. Ég hef svosem ekkert haft það neitt sérstaklega öflugt um dagana. Þetta var ekki botnfylli í innkaupakerrunni enda stóð aðeins til að ná í smá nesti í skólann og eitthvað pínu meira. Það eru ekki nema nokkur ár síðan að maður gat bókstaflega stútfyllt innkaupakerruna fyrir 14 - 15 þúsund. Fyrr má nú rota en dauðrota.


Bloggfærslur 11. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband