Frábærir tónleikar

Birna og Páll Óskar

Nú rétt í þessu voru að enda frábærir tónleikar á heimili okkar í Leirvogstungu. Þannig er að Birna okkar er mikill aðdáandi Páls Óskars og fékk Silfursafn hans í jólagjöf.

Þar sem að senn líður nú að þorrablóti okkar Mosfellinga og ég ásamt Hilmari vini mínum, ritstjóra Mosfellings, sjáum um söng og spil á því, þurfti ég að ná í tækjabúnað til að undirbúa mig og æfa fyrir þorrablótið.

Birna 10

Ég var ekki fyrr búinn að tengja söngkerfið og taka smá æfingu en Birna vildi fá míkrófóninn og bað um að Páll Óskar yrði settur á fóninn.

Allt var sett í botn og Birna hélt tónleika fyrir mömmu og pabba sem stóðu yfir í c.a. klukkustund. Hún söng nánast alla plötuna og ýmist stóð eða sat í stiganum á meðan þeir fóru fram, það fór eftir lögunum sem hún flutti.

Þetta var í fyrsta skipti sem við heyrðum Birnu syngja í míkrófón og mikið höfðum við gaman af því.

Þú komst við hjartað í mér elsku Birna.

Birna Páll 1


Bloggfærslur 10. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband