Ţegar ég vann hjá Hafskip

HjaltiMegas 10Áriđ 1980 var ég starfsmađur hjá Hafskip, ţá 16 ára gamall. Ég var á kajanum og starf mitt var ađ mestu fólgiđ í ţví ađ afferma og ferma fraktskipin. Mér er ţessi tími sérstaklega minnisstćđur fyrir margar sakir. Ég vann međ Megasi og Hjalta Úrsus, báđir einstakir menn, góđir og skemmtilegir.

Ţegar viđ tćmdum gáma međ áfengi og tóbaki sá Megas m.a. um ađ allt fćri rétt fram svo ekki yrđu óvćnt afföll á góssinu öllu. Ţađ var nefnilega nokkuđ algengt ađ slíkt gerđist ţegar gámar međ slíkum varningi voru tćmdir. Ein og ein flaska átti ţađ til ađ hverfa og einnig tóbakskarton af öllu tagi. Ţađ gerđist ekki ţegar Megas stóđ vaktina, ţá voru örryggiskröfur miklar.

Öryggiskröfur voru hins vegar ekki miklar ţegar viđ kajastrákarnir vorum látnir hanga í krókum krananna á milli gáma til ađ spara tíma viđ ađ hengja á ţá eđa losa. Ţegar ég hugsa um ţađ í dag, ţegar okkur var sveiflađ í margra metra hćđ fram og til baka allan liđlangan daginn fć ég bókstaflega hroll. Ţvílíkt brjálćđi. 

John_Lennon 10Annađ er mér einnig og ekki síst minnisstćtt frá ţessum tíma. Einu sinni vorum viđ strákarnir í kaffitíma í gömlu Wolksvagen Rúgbrauđi ađ gćđa okkur á nestinu okkar og hlustuđum einu sinni sem oftar á fréttirnar. Ţá kom frétt í útvarpinu sem gerđi ţađ ađ verkum ađ á okkur sló ţögn sem var engu lík og engin okkar gleymir nokkru sinni.

Fréttamađurinn sagđi, "Í nótt var Bítillinn John Lennon myrtur, hann var skotinn fyrir utan heimi sitt í Bandaríkjunum". 

Síđan eru liđin rúm 28 ár. Já, hann líđur tíminn.


Bloggfćrslur 4. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband