Alltaf skemmtilegur og mikill ljúflingur

Talandi um góđa söngvara eins og ég gerđi í fćrslunni hér fyrir neđan.

Ţađ var gaman ađ horfa á viđtal sjónvarpsmannsins vinsćla, Jóns Ársćls, viđ Eirík Hauksson söngvara.

Leiđir okkar Gildrufélaga og Eika lágu saman áriđ 1980, ţá var hann í Start og viđ félagarnir í hljómsveit sem viđ kölluđum á ţeim tíma Pass. Skömmu síđar breyttum viđ nafninu í Gildran. Hljómsveitirnar tóku sig saman og auglýstu stórdansleik um verslunarmannahelgina í Félagsgarđi í Kjós.

Til ađ gera langa sögu stutta, ţá mislukkađist ţetta ćvintýri okkar algerlega. Ţađ komu bókstaflega engir til ađ hlýđa á okkur og varđ stórtap á ţessu ćvintýri okkar. Vissulega vorum viđ allir miđur okkar en ţetta gerđi ţađ ađ verkum ađ viđ félagarnir áttum saman nćturlangt spjall. Viđ spjölluđum um lífiđ og tilveruna. Ţetta var góđ og ógleymanleg stund og tengdumst viđ ţá böndum og vináttu, sem allt frá ţeirri helgi hefur veriđ órjúfanleg.

Síđan ţá höfum viđ allir félagarnir í Gildrunni og Start margsinnis ruglađ okkar reitum saman og spilađ saman viđ hin ýmsu tćkifćri, stór og smá. Dabbi Karls trommari, Sigurgeir Sigmunds gítarleikari, Jonni Ólafs bassaleikari, Nikki Róberts hljómborđsleikari, Eiki Hauks söngvari og Pétur Kristjánsson söngvari, skipuđu hljómsveitina Start á ţessum tíma. 

Start og Gildran 1010

Start og Gildran.

Efri röđ frá vinstri: Sigurgeir Sigmunds, Kristján Edelstein, Pétur Kristjáns,  Nikki Róberts,  Dabbi Karls og Eiki Hauks. Neđri röđ frá vinstri: Billi Start, Frikki Hall, Kalli Tomm, Biggi Haralds og Jonni Ólafs.

Sigurgeir gekk síđar til liđs viđ Gildruna og Jonni Ólafs bassaleikari spilađi međ okkur Bigga í tćp tvö ár í 66 og inn á eina plötu. Billi Start varđ einn af okkur Gildrumönnum og ţvćldist međ okkur um land allt í árarađir. Pétur, heitinn, Kristjáns og Eiríkur tróđu upp međ okkur Gildrufélögum í hálft ár á Hótel Íslandi á mörgum frábćrum tónleikum og Eiríkur Spilađi og söng međ okkur félögunum í Gildrunni og Gildrumezz nokkra ógleymanlega tónleika. Međal annars á fjölmennasta dansleik sem haldin hefur veriđ í Mosfellsbć. Ţá var reyst viđ Álafoss föt bezt risatjald og haldnir tónleikar og dansleikur sem eru mörgum enn í góđu minni.

Eiríkur, eins og allir vita sem ţekkja hann, er mikill öđlings drengur, hann hefur náđ hćstu hćđum hérlendis og í Noregi og sá frami stafar ekki einungis af frábćrri söngrödd hans heldur örugglega ekki síđur af ţeirri manneskju sem hann hefur ađ geima.

Eiríkur gantađist međ ţađ í ţćttinum hjá Jóni Ársćls ađ hann syngi í mónó í dag eftir erfiđa sjúkdómsbaráttu sína. Ég hafđi sérstaklega gaman ađ ţví ađ heyra hann segja ţetta ţví viđ göntuđumst oft međ ţađ ég og Eiki ţegar viđ spiluđum og sungum saman ađ viđ vćrum í stereó ţegar viđ vćrum saman komnir tveir. Báđir vinirnir búnir ađ ganga í gegnum sömu baráttu. 

Gildrumezz

Myndin er tekin rétt áđur en viđ fórum á sviđ til ađ spila á stórkostlegum og yfirpökkuđum tónleikum á Akureyri. Gildran ásamt Eiríki Haukssyni.


Ţegar kallinn tók bókstaflega alla í nefiđ

Mikiđ er leiđinlegt ađ heyra af ţessum vandrćđum George Michael međ eiturlyfin. Ţađ er eins og mig minni ađ ţetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann er gripinn blessađur.

Ég sá hina frćgu tribute tónleika Freddie Mercury áriđ 1992, ţá bókstaflega tók George Michael alla söngvara sem ţar tróđu upp og ađra sem tróđu ekki ţar upp bókstaflega í nefiđ.

Mín tilfinning er sú ađ ţessir tónleikar hafi gert ţađ ađ verkum ađ fjöldin allur af fólki, hafi ţá fyrst áttađ sig á, hverslaga yfirburđa söngvari mađurinn er.


Bloggfćrslur 21. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband