Moggabloggiđ, fjandi menningarlífsins?

Upp kom nýlega sérstakt mál á Moggablogginu. Lokađ var fyrir ţann möguleika hjá ötulum bloggara, Helgu Guđrúnu Eiríksdóttur, (blekpenni.blog.is) ađ geta bloggađ viđ fréttir. Ekki stóđ á viđbrögđum félaga hennar úr bloggheimum ađ lýsa yfir furđu sinni á ţessum gjörningi ritstjórnar Moggabloggsins.

Á annađ hundrađ manns hafa tjáđ sig um máliđ og virđist sem yfirgnćfandi meirihluti eigi ekki til orđ yfir ţessari ákvörđun.

Árni Matthíasson ritstjóri Moggabloggs sendi Helgu skeyti ţar sem fram kemur ástćđa lokunarinnar og má sjá hana á síđu Helgu.

Ţessi skrif ryfjuđu upp fyrir mér mál sem tengist mér persónulega og skrifum Árna Matt. Ţannig var ađ Árni Matthíasson var eitt sinn rćđumađur á baráttutónleikum sem haldnir voru í Reykjavík ţar sem veriđ var ađ mótmćla vegi sem átti reyndar ađ leggja í Mosfellsbć.

Á ţessum tónleikum var ein af uppáhaldshljómsveitum Árna, Sigurrós, ađalnúmeriđ en hljómsveitin Sigurrós kom talsvert viđ sögu í lokunarumrćđunni hjá Helgu Guđrúnu.

Árni sagđi á ţessum tónleikum m.a. í rćđu sinni orđrétt.

"Ţađ er svo gráglettni örlaganna ađ Gildrumađurinn Karl Tómasson sé einn helsti fjandi menningarlífsins í kvosinni, nú orđinn forseti bćjarstjórnar".

Árni bćtti svo um betur og skrifađi ţessi ummćli sín einnig á bloggiđ sitt.

 

Ég vellti ţví nú fyrir mér hvort er saknćmara eđa á lćgra plani, ađ kalla mann fjanda menningarlífs í bćjarfélagi sínu eins og Árni Matt gerđi, eđa blogga viđ óviđeigandi frétt.

Um ţađ snýst ţessi fćrsla mín í raun. 

Ég hef aldrei átt í útistöđum viđ Árna Matt, kvorki fyrr né síđar, öđru nćr. Árni féll hinsvegar, á ţessum tónleikum og á bloggi sínu, í ţá gildru eins og svo margir ađrir á sínum tíma, ađ taka afstöđu í máli sem hann ţekkti greinilega lítiđ til, ef nokkuđ, ef marka má skrif hans.

Ađ taka afstöđu til mála eđa mynda sér skođun án ţekkingar og skeyđa fram á ritvöllinn međ hástemdar yfirlýsingar og niđrandi skrif er alltaf slćmt. Ekki bćtir ţađ heldur úr skák ef slík afstađa er einungis tekin, jafnvel vegna afstöđu stórstjarna eđa ţátttöku ţeirra í baráttunni.

Slíkt er á góđri íslenskri tungu kallađ snobb.

Ţađ er engan vegin sćmandi ritstjóra Moggabloggsins.


Bloggfćrslur 18. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband