mán. 15.9.2008
Framsóknarbragur
Það var ekki einungis skondið að lesa frétt sem birt var á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ í gær, heldur væri nær að segja sorglegt. Þvílíkur tvískinnungur og pólitísk smeðja sem lá þarna að baki og hvaða hvatir? Mér er spurn.
Á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ sáu menn ástæðu til að gera að frétt, bloggskrif Varmársamtakanna og þeirra fylgifiska. Nú detta af mér allar dauðar lýs, Framsóknarmenn sem hafa alltaf greitt atkvæði sitt þvert á vilja Varmársamtakanna í einu og öllu. Einnig vakti athygli mína í fréttinni furðu mikill samhljómur við skrif Valda bloggdólgs og Gunnlaugs B. Þokkalegur pakki þar á ferð.
Það voru mér einnig mikil vonbrigði að engin skuli hafa gengist við slíkri frétt í Framsóknarfréttum. Í raun skal samt engan undra svo makalaus hörmung sem þessi skrif voru. Þar voru sett innan gæsalappa ummæli höfð eftir Varmársamtökunum rétt eins og það hafi verið mín eigin. Einnig var sagt orðrétt:
Í viðtalinu gerir Karl sjálfan sig að píslarvotti og segist persónulega hafa verið tekinn fyrir. Ljóst er Karl gerir hér engan greinarmun á starfi sínu sem stjórnmálamaður og persónulegum málum.
Um hvaða persónulegu mál mín er þarna rætt og hvaðan eru þau ummæli höfð? Þau komu ekki fram í viðtalinu við mig. Þetta hefur ritstjóri Framsóknarfrétta lesið einhversstaðar annarsstaðar. Gæti hugsast á einhverri bloggdólgssíðunni?
Umræða mín "fræga" um skurðgröfur eins og haft er á orði í fréttinni hjá Framsóknarfréttum vakti vissulega athygli, það er rétt en bent skal á að þessi ummæli lét ég fyrst falla á flokksráðsþingi Vinstri grænna nú á dögunum og þá sagði ég orðrétt:
"Við megum ekki fara á taugum þótt við sjáum Bryndísi Scram og Sigurrós og heldur ekki alltaf þótt við sjáum skurðgröfu"
Þetta var það sem ég sagði og ég veit að þessi ummæli mín vöktu athygli. Eitt mega þó Framsóknarfréttir vita, rétt eins og allir aðrir að þessi orð mín og ræða féll í góðan jarðveg hjá félögum mínum í Vinstri grænum. Þau tóku gagnrýni minni með reisn.
Marteinn Magnússon ritstjóri Framsóknarfrétta. Þetta var hressilegt skot undir beltisstað hjá ykkur. Þetta fannst ykkur réttmætt og fréttnæmt.
Aldrei datt ykkur í hug að skrifa t.d. um stórkostlega vel heppnaða bæjarhátíð okkar á dögunum, Í túninu heima. Hvorki fyrir hana né eftir.
Með þessu áframhaldi undirstrikið þið tilgerðalega og tvískinnungslega pólitík ykkar og fréttamennsku. Það er ekki bæði sleppt og haldið í pólitíkinni, ekki frekar en í lífinu sjálfu. Þetta snýst um að vera samkvæmur sjálfum sér.
Ég lýsi vanþóknun minni á svona lágkúrulegum og ófagmannlegum fréttaflutningi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mán. 15.9.2008
Mænuskaðastofnun Íslands
Mig langar að minna á Landssöfnun stofnunarinnar sem er þegar hafinn og nær hápunkti þann 19. September með söfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2. Það er mikil þörf á stofnun sem þessari og í raun með ólíkindum að hún hafi verið stofnuð fyrir tilstuðlan einstaklinga, í fararbroddi þeirra mæðgna Auðar Guðjónsdóttir og Hrafnhildar G. Thoroddsen. Þær mæðgur hafa unnið ómetanlegt starf fyrir frekar daufum eyrum Mænuskaðastofnun Íslands er stofnuð af háleitri hugsjón. (fengið að láni af heimasíðunni www.isci.is) Þess er sjálfsagt að geta að frábært starfsfólk á Endurhæfingardeild Landspítalans að Grensási hefur skilað mörgum kraftaverkum, en húsnæðið að Grensási er sprungið, meðal annars vegna aukningar á mænusköðum í okkar hraða samfélagi. Verndari stofnunarinnar er frú Vigdís Finnbogadóttir. Styrktarreikningur Mænuskaðastofnunar er 311 - 26 - 81030 Kennitala 411007-1030 " Það getur haft stórkostlega þýðingu fyrir heimsbyggðina að vel menntuð og vel efnum búin þjóð tali máli mænuskaðans við þjóðir heimsins og beiti pólitískum áhrifum sínum til framfara á þessu sviði læknavísindanna " Heimasíðan er www.isci.is
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)