Út markaði ákveðin tímamót hjá okkur

Út

Á árunum 1991 og 1992 hljóðrituðum við hljómplötu sem ber heitið Út. Hún var hljóðrituð í Grjótnámunni og um upptökur sá Jóhann Ásmundsson Mezzoforte bassaleikari. Tengsl okkar við Jóa áttu svo eftir að verða meiri þegar fram liðu stundir.

Þegar hér var komið við sögu var Gulli Falk gítarleikari hættur og við orðnir þrír. Á meðan á upptökum stóð gekk gítarleikarinn Sigurgeir Sigmundsson til liðs við okkur og var það mikill hvalreki fyrir hljómsveitina.

Gildran 151010

Glæsilegir í karrýúlpunum við rútuna okkar. Eins og sjá má auglýstum við fyrir Samúel.

Á Út plötunni fengum við einnig til liðs við okkur fleiri aðstoðarmenn en vanalega. Allir Mezzoforte strákarnir: Friðrik Karls, Gulli Briem og Eyþór Gunnars koma við sögu á plötunni, það var sannarlega gaman að starfa með þeim. 

Gildran 13

Gildran 12

Hljómplatan markaði ákveðin tímamót hjá okkur félögunum, tvö lög af henni náðu toppsæti á vinsældarlista Rásar tvö og voru mörg lög af henni spiluð oft á útvarpsstöðvum. Í kjölfarið varð bókstaflega brjálað að gera hjá okkur við tónleikahald og spilamennsku um land allt. Við keyptum okkur stóra Benz rútu og merktum í bak og fyrir, réðum okkur bílstjóra, Loft Ásgeirsson, hljóðmann, Ásgeir Jónsson, söngvara úr Baraflokknum og rótara, Helga Pálsson, með í för var einnig oftar en ekki vinur okkar Billi Start. Þetta var sérlega skemmtilegur og samstilltur hópur. 

Gildran 11

Gamli góði hópurinn. Efst til vinstri: Ásgeir, Helgi, Billi og Sigurgeir. Neðri röð: Biggi, Kalli, Þórhallur og Loftur.

Gildran 10

Gildran ásamt mökum og aðstoðarmönnum að fagna toppsætinu á Rás Tvö. Myndin er tekin fyrir tónleika á Gauki á Stöng.


Bloggfærslur 9. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband