mán. 4.8.2008
Þá var komið að Ljósvakaleysingjum
Plötuna hljóðrituðum við árið 1990 og eins og hinar þrjár fyrri í Stúdíó Stemmu hjá Didda fiðlu. Við félagarnir fengum til aðstoðar við upptöku hljómplötunnar gítarleikarann og rokkarann mikla, Guðlaug Falk. Hann gekk að upptökum loknum til liðs við Gildruna og starfaði með, í rúm tvö ár. Guðlaugur er frábær rokkgítarleikari og góður drengur sem hefur aldrei vikið frá uppruna sínum í rokkinu og gefið út nokkrar sólóplötur.
Þessi hljómplata markaði að vissu leyti tímamót hjá Gildrunni. Hún var gefin út bæði á vínil og cd og seldist geisladiskurinn upp á augabragði og er ófáanlegur í dag. Eftirspurn eftir hljómsveitinni varð einnig meiri en við höfðum átt að venjast.
Eins tókum við á þessari hljómplötu í fyrsta skipti upp á því að útsetja og flytja lag sem var ekki eftir okkur sjálfa. Lag sem átti eftir að reynast óhemju vinsælt og verða að ákveðnu leyti vörumerki hljómsveitarinnar.
Aðdragandi þess var sá, að Guðmundur Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Mótorsmiðjunni, var að vinna að gerð stuttmyndar með Rósu Ingólfs í aðalhlutverki og fór þess á leit við okkur að flytja titillag myndarinnar, Vorkvöld í Reykjavík og setja það í okkar búning. Gamla útgáfa Ragga Bjarna var flutt í upphafi myndarinnar og okkar útgáfa á laginu í lok myndarinnar. Þetta var skemmtilegt ævintýri. Annað lag á plötunni eftir Bigga, Andvökunætur, gerði það einnig gott og naut alltaf vinsælda á tónleikum okkar.
Platan eins og þær fyrri fékk mjög góða dóma og mér til mikillar ánægju kaus Morgunblaðið þetta eitt af flottustu plötualbúmum þess árs. Hugmynd mín á bakvið það, var að búa til einskonar línurit t.d. um vinsældir útvarpsstöðva eins og nafn plötunnar vitnar m.a. til. Úr línuritinu útbjó ég ýkta prófíl mynd af okkur félögunum þrem.
Hér kemur plötudómur Mbl (Andrésar Magnússonar)
Ljósvakagildran
Hljómplötur Andrés Magnússon
Ljósvakagildran Hljómplötur Andrés Magnússon Gagnrýnandi hefur aldrei skilið hvers vegna Gildran hefur ekki "meikað það" á öldum ljósvakans. Og reyndar botna hljómsveitarmeðlimir hennar ekki í því sjálfir. Þaðan er nafn nýjustu plötu Gildrunnar, Ljósvakaleysingjarnir, fengið.
Gildran á sér tryggan aðdáenda hóp og miðað við aðsókn að tónleikum þeirra þarf hljómsveitin ekki að kvarta. Gildran hefur ekki hikað við að leika hressilegt rokk og ról fram að þessu, og bregst ekki nú frekar en endranær. Samt sem áður hefur melódían alltaf ráðið ferðinni og er í heiðurssæti hér.
Það er beinlínis þakkarvert hvað Gildran hefur þraukað þrátt fyrir afskiptaleysi ýmissa útvarpsstöðva. Hljómsveitin lætur dægurflugna höfðingja ekki stjórna sér og fyrir vikið er meiri breidd í íslensku poppi en ella. Án slíkra hljómsveita kæmi ekkert út þessi jól nema Rokklingarnir og Sléttuvarúlfarnir.
Gildran er skipuð þeim Birgi Haraldssyni, söngvara og gítarleikara, Karli Tómassyni, trumbuleikara, og Þórhalli Árnasyni, bassaleikara. Sér til fulltingis hafa þeir gítarleikarann Guðlaug Falk.
Birgir hefur gríðarlega kraftmikla og sérstæða rödd, sem hann beitir óspart. Mér finnst Karl reyndar ekki njóta sín jafnvel á plötunni og gerist á tónleikum, hann virðist halda aftur af sér og lætur nægja að vera á þungum skriði. Þórhallur er sérkapítuli, en að mínu viti er hann einn smekklegasti bassaleikari landsins. Hann sýnir margvísleg tilþrif á bassann, en fellir þau svo að lögunum að engin misfella verður á. Það getur hver sem er þjösnast á bassanum og leikið hraðar runur, en þetta er vandi.
Guðlaugur Falk er Gildrunni góð ur liðsauki. Hann er mjög lunkinn gítarleikari og gefur hljómsveitinni mjög góða fyllingu, sem hana hefur stundum skort. Flestir taka vafa laust eftir gítarsólóum hans, sem vissulega eru meiriháttar (taka mið af ekki minni foringjum en Eddie Van Halen og Stevie Vai), en mér finnst undirleikurinn jafnvel enn meiri snilld. Í lagi eins og Stundum gæðir hann það nýju lífi með "undir spils-riffi".
Ljósvakasnúðar hafa enga afsökun fyrir því að leika þessa plötu Gildrunnar ekki. Á henni er sandur af góðum lögum, sem vel falla að útvarpi. Sem dæmi má nefna Mín eina von, Stundum, Andvökunætur og blúsinn Játning. Vilji menn frekar hugljúfar ballöður eru þarna lög eins og Það sem var og Tregi, sem er alveg stórfallegt.
Satt best að segja er hið eina sem finna má að Ljósvakaleysingjunum að þar er ekki að finna yfirburða lagsmíð á borð við Mærina, sem kom út á Hugarfóstri. Þó má segja að Tregi sé af svipuðu kalíberi. Á þessari plötu er það hins vegar hressilegt rokk, sem er í aðalhlut verki, svo um það er ekki að fást. Þá ber að geta sérlega vel hannaðs umslags, sem er með því betra um þessi jól. Þessi plata fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Bloggar | Breytt 5.8.2008 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
mán. 4.8.2008
Besti bloggari Íslands árið 2008
Fyrir ári síðan varð Jens Guð, sá hressilegi og skemmtilegi bloggari þess heiðurs aðnjótandi með glæsibrag.
Hver verður næstur?
Endilega takið þessu ekki of alvarlega, þetta er til gamans gert og þarfnast engra útskýringa eða pælinga.
Það eina sem þið gerið er að tilnefna bloggara undir þessari færslu og þeir tíu efstu fara eins og fyrir ári síðan í skoðanarkönnunar pottinn hjá mér þann 17. ágúst. Í lok ágúst mánaðar kemur svo í ljós hver hreppir heiðurstitilinn.
Nú er bara að taka þátt og hafa gaman af kæru vinir. Tilnefna einhvern.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (79)