Guðný Halldórsdóttir bæjarlistamaður

Duna 1Í gær var Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðakona útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar.

Eftir að Duna, eins og hún er oftast kölluð í sveitinni, hafði veitt viðurkenningunni viðtöku sagði hún m.a. í ræðu sinni oft hafa leitað til sveitunga sinna til að fara með hlutverk í myndum sínum.

Það eru orð að sönnu og vart er til sá Mosfellingur sem hefur eitthvað komið nálægt Leikfélagi Mosfellssveitar sem hefur ekki farið með hlutverk í einhverri mynd hjá Dunu. Þetta hefur verið sérstaklega skemmtileg hefð hjá Dunu og án vafa einnig sérstök upplifun fyrir þá leikara sem hafa fengið að taka þátt. Það er nefnilega heilmikið ævintýri að vera á tökustað þegar búin er til alvöru kvikmynd.

Guðný Halldórsdóttir er sérlega vel af þessum heiðri komin og óska ég henni innilega til hamingju.


MKMedia strákarnir engum líkir

Mikið hafði ég gaman af heimsókn þeirra félaga í sumar og gleymi aldrei. Þá komu þeir á heimili mitt og spurðu mig spjörunum úr. Bókstaflega um allt á milli himins og jarðar.

Endilega kíkið á síðu þeirra félaga þar sem þeir taka mörg sérlega skemmtileg viðtöl.

Með bestu kveðju frá K. Tomm úr Mosó.

http://mkmedia.is/assets/files/Gildran_vi__tal_tilb__i___NEW.wmv


Bloggfærslur 30. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband