Leynihátíð

Leyni 1

Leyni 2

Leyni 3

Leyni 5

Leyni 6

Leyni 7

Leyni 8

Leynir 10

Leynir 11

Leynir 12

Leynir 14

Leynir 15

Leynir 16

Leynir 17

Leynir 18

Fátt er skemmtilegra en alvöru útihátíð með brennu, söng og flugeldum í hópi góðra vina. Leynihátíðin stóð undir öllum væntingum og lukkaðist í alla staði frábærlega.

Ég og Hilmari vinur minn ákváðum að bjóða nokkrum vinum og kunningjum á eina slíka á landareign okkar og í bústaðinn okkar Leyni, nærri Laugarvatni.

Rúmlega 40 manns heimsóttu okkur þessa helgi og var trallað og sungið, spjallað og spekúlerað fram á rauða nótt.

Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar fyrir stórkostlega skemmtun og munum vafalítið gera þetta aftur að ári.

Myndir: Ruth Örnólfsdóttir


Í túninu heima

Ituninuheima2008Þá fer bæjarhátíðin okkar að skella á og nú er bara að vona að veðrið leiki við okkur. Ég skora á alla að kynna sér dagskrána á mos.is

Flokksráðsfundur VG

Hljómurinn

Dagskrá flokksráðsfundar

 

Flokksráðsfundur Vinstri grænna verður haldinn dagana 29.-30. ágúst næstkomandi í Reykholti. Í flokksráði eiga sæti 30 landsfundakjörnir fulltrúar, allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaþingmenn, formaður UVG, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmaráða auk þess sem svæðisfélög ungliða eru sérstaklega boðnir. Fundurinn er að öðru leyti opinn öllum félögum í Vinstri grænum. Áherslan að þessu sinni verður lögð á efnahagsmál, sveitastjórnarmál og velferðarmál eins og dagskráin gefur til kynna:

 

Föstudagur 29. ágúst 2008

 

16.30 Mæting í Reykholt

17.00 Fundur settur í Snorrastofu. Katrín Jakobsdóttir kynnir drög að ályktunum og stöðu málefnavinnu

17.10 Drífa Snædal kynnir flokksstarf vetrarins

17:20 Efnahagsvandinn – leiðir til lausnar, Steingrímur J. Sigfússon

17:50 Sveitastjórnarpólitíkin – Karl Tómasson og Svandís Svavarsdóttir

18.20 Létt stund fyrir mat

 

19.30 Matarhlé

 

20.15 Almennar stjórnmálaumræður

23.00 Fundi frestað til morguns

 

Laugardagur 30. ágúst 2008

 

09.00 Vinnuhópar:

  • Evrópu- og efnahagsmál – Katrín Jakobsdóttir leiðir umræður
  • Velferðarmál – Ögmundur Jónasson leiðir umræður
  • Sveitastjórnarmál – Svandís Svavarsdóttir leiðir umræður

11.00 Umræður og afgreiðsla ályktana

12.00 Fundi slitið - hádegisverður

13.30 Ferð undir leiðsögn um nágrennið


Bloggfærslur 27. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband