Kæru bloggvinir og aðrir gestir.
Baráttan er hörð á toppnum í kosningu um besta bloggara Íslands. Nú hefur gamli refurinn Jens Guð tekið forystuna af Láru Hönnu og eins og fyrr eru Jenný Anna, Ómar Ragnars og Jóna Á Gísla öll í hnapp í baráttunni.
Athugið að þann 31. ágúst kl 21: 00 verða úrslit gerð kunn.
Endilega takið þátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fim. 21.8.2008
Birna og Bjartur
Þá er sumarfríi hjá flestum lokið og á morgun verða skólasetningar um land allt. Ég held að hápunktur sumarsins hjá Birnu hafi verið vikan sem nú er að líða, þrátt fyrir Spánarferð og heilmikla reisu okkar um landið.
Birna eignaðist nýjan vin á reyðnámskeiði sem hún hugsar um öllum stundum. Það er hann Bjartur gamli.
Birna er mikill dýravinur og í ferð okkar með Særúnu í sumar þar sem farþegum bauðst að smakka á nýveiddum skelfiski, ígulkerum og fleira góðgæti stóð hún að mestu í björgunaraðgerðum. Tók alla krossfiska og krabba og henti þeim rakleiðis aftur í sjóinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 21.8.2008
Nokkrar myndir frá góðum degi
Nýlega skrifaði ég grein um góðan og fallegan dag sem við áttum í Mosfellsbæ. Færsluna má sjá fyrir neðan þá síðustu. Þá vígðum við skóla og kvöddum einn af okkar ástsælustu kennurum, Sigríði Johnsen.
Hér koma nokkrar myndir frá þessum fallega og góða degi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)