ţri. 19.8.2008
Góđur og fallegur dagur í Mosó
Mosfellsbćr grćnn og fallegur í dag
Veđriđ lék viđ okkur Mosfellinga eins og fleiri landsmenn í dag. Viđ vígđum nýju skólastofurnar okkar í landi Helgafells sem hafa fengiđ nafniđ Brekkukot. Ég held hreinlega ađ leitun sé ađ eins fallegu skólastćđi.
Ţessi skóli kemur í upphafi til međ ađ gegna hálfgerđri útibússtöđu fyrir vćntanlegan Krikaskóla sem fljótlega verđur hafist handa viđ ađ reisa og verđur án vafa einn glćsilegasti skóli landsins. Ađ ţví loknu mun hann taka viđ vćntanlegum nýbúum í landi Helgafells.
Herdís Sigurjónsdóttir formađur frćđslunefndar hélt góđa og fróđlega tölu um tilurđ skólans. Séra Ragnheiđur Jónsdóttir blessađi mannvirkiđ og komandi skólastarf og ađ lokum hélt Ţrúđur Hjelm ný ráđin skólastjóri góđa tölu.
Ađ ţessu loknu stormađi öll hersingin í Hlégarđ til ađ kveđja einn af okkar ástsćlustu kennurum og skólastjóra í Lágafellsskóla nú hin síđari ár Sigríđi Johnsen. Sigríđur réđ sig til starfa í Mosfellsbć fyrir um 30 árum og hefur frá ţeim tíma unniđ óhemju gott og óeigingjarnt starf í skólamálum. Sigríđur er einstök kona sem hefur međ krafti sínum, elskulegheitum og frammúrskarandi stjórnunarhćfileikum átt sinn ţátt í ţví ađ koma öllu skólastarfi í Mosfellsbć í hćstu hćđir. Slíkri manneskju og starfskrafti verđur seint full ţakkađ.
Mikiđ óskaplega ţótti mér vćnt um hlýleg og falleg orđ hennar til pabba í rćđu hennar í dag en pabbi var skólastjóri í Varmárskóla og réđi hana til starfa ţegar hún kom í Mosfellssveitina. Hún talađi m.a. um ţađ ţegar pabbi leiddi hana um skólann til ađ kynna henni starfiđ og ţegar hún hitti í ţeirri skođunarferđ Birgi D. Sveinsson, kennara og síđar skólastjóra og stofnanda Skólahljómsveitar Mosfellssveitar. Hún talađi um ađ pabbi hafi reykt pípu og Birgir vindla sem hafi ekki ţótt tiltökumál ţá í skólahúsum. Eftir ţessu man ég vissulega en samt óljóst. Ţađ er einstaklega gaman ađ heyra svo mćlska og skemmtilega konu eins og Sigríđi segja frá.
Sigríđur kom einnig mikiđ inn á ţađ mikilvćga starf sem kennarar vinna um land allt og sagđi ţetta sennilega eitt skemmtilegasta starf sem hćgt vćri ađ hugsa sér.
Snemma í sumar heimsóttu Birgir og Jórunn okkur Línu og áttum viđ saman notalega stund og heilmikiđ og gott spjall. Birgir fćrđi okkur ţá gamlar og einstakar myndir sem hann á í fórum sínum, einar af mörgum og ég hef gaman af ađ fá tćkifćri til ađ láta fylgja ţessari fćrslu minni.
Mikil vinátta ríkti á međal okkar fjölskyldna og eins og ég hef komiđ ađ störfuđu Birgir og pabbi náiđ saman í rúma tvo áratugi.
Samstarf ţeirra og vinátta hófst í Brúarlandsskóla ţar sem afi Lárus var skólastjóri.
Hér koma myndirnar og myndatextar undir hverri mynd. Takk fyrir ţessa einstaklega skemmtilegu sendingu kćri Birgir.
Jóhanna skólastjóri Lágafellsskóla,
Garđar eiginmađur Sigríđar og Sigríđur á góđri stund.
Séra Bjarni, Bragi Melax, Tómas, Ari Birgir, Guđmundur,
Lárus og Klara Klćngs.
Guđmundur, Birgir D. Sigvaldi Sturlaugs, ( bróđir pabba)
Klara, pabbi, Eyjólfur (pabbi Magga í Latabć, sjáiđ svipinn.) og afi.
Jórunn, kona Birgis og mamma í útileigu á Laugarvatni.
Pabbi og Birgir á góđri stund í útileigu.
Afi Lárus, skólastjóri á Brúarlandi og Gunnlaugur Hreinsson.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
ţri. 19.8.2008
Rúm vika í fjöriđ
Ađra helgi verđur haldin okkar árlega bćjarhátíđ í Túninu heima. Undirbúningur hefur eins og áđur veriđ undir öruggri stjórn Dađa Ţórs Einarssonar. Dađi á sannarlega hrós skiliđ fyrir ţá miklu vinnu og metnađ sem hann leggur ávalt í undirbúning fyrir hátíđina.
Nú er bara ađ vona ađ veđriđ leiki viđ okkur og ađ sem flestir íbúar taki ţátt í fjörinu.
Af heimasíđu Mosfellsbćjar mos.is
Viđ skipulagningu hátíđarinnar verđur lögđ áhersla á ađ skemmtileg innanbćjarstemmning ríki á hátíđinni okkar og ađ sem flestir bćjarbúar séu ţátttakendur.. Liđur í ţví hefur veriđ ađ virkja sem flesta listamenn, einstaklinga og félög í Mosfellsbć og búa til dagskrá sem endurspeglar ţá sveit í borg sem er okkar ađalsmerki. Til viđbótar ţessu verđa fengnir fyrsta flokks listamenn víđs vegar ađ. Ţessi blanda af dagskráratriđum heppnađist sérlega vel í fyrra.
Önnur ástćđa fyrir ţví hversu vel gekk var ekki síst sú ađ bćjarbúar lögđust á eitt um ađ gera hátíđina eftirminnilega og skemmtilega. Dćmi um ţađ eru skreytingar í mismunandi litum eftir hverfum. Ţá grilluđu grannar einnig víđa saman.
Heyrst hefur ađ hverfin séu ţegar farin ađ skipuleggja skreytingar og grill fyrir hátíđina í ár!
Hćgt er ađ hafa samband međ tölvupósti á slóđann: dadithor@internet.is fyrir nánari upplýsingar.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)