Kæru bloggvinir og aðrir gestir. Baráttan er hörð á toppnum í kosningu um besta bloggara Íslands. Þegar þetta er skrifað er Lára Hanna með forystuna. Jens Guð, Jenný Anna, Ómar Ragnars og Jóna Á Gísla eru öll í hnapp í baráttunni á eftir Láru Hönnu og skiptast þau reyndar reglulega á um toppsætið.
Endilega takið þátt.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
sun. 17.8.2008
Sextíuogsex
Árið 1993 fór Gildran í frí og upp úr því stofnuðum við Biggi dúettinn Sextíuogsex. Dúett sem varð fljótlega tríó með Frikka Hall, þeim ótrúlega náttúru tónlistarmanni, sem hefur komið mörgum á óvart með tónlistarhæfileikum sínum. Einnig starfaði með okkur í Sextíuogsex Jonni Ólafs Pelicani. Mikill húmoristi og snillingur, fullur af grallaraskap og endalausri reynslu sem var ómetanleg fyrir okkur.
Það sem meira var að upp úr þessu ævintýri okkar komu tveir hljómdiskar sem við hljóðrituðum á ógleymanlegum tíma með Óla í Hvarfi. Sextíuogsex var nefnilega svolítið skemmtileg hljómsveit.
Við spiluðum um land allt og það var bókstaflega brjálað að gera hjá okkur. Oftar en ekki fyrir troðfullum litlum krám. Krám sem höfðu öllu jafna ekki átt að venjast mikilli aðsókn. Það kom fyrir að auglýst væri að Gildran væri með tónleika. Það var stundum svolítið erfitt hjá okkur Bigga í upphafi slíkra tónleika að réttlæta þann gjörning en oftast tókst það.
Eitt sumarið fórum við með Bylgjunni og öllu hennar starfsfólki hringinn í kringum Ísland. Það var einstaklega skemmtileg ferð. Þá tróðum við upp við öll tækifæri í útvarpsþáttum þeirra fyrri part dags um land allt og síðar um kvöldið með dansleik.
Þetta 66 ævintýri var sannarlega skemmtilegur tími.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sun. 17.8.2008
Birgir Haraldsson 50 ára
Vinur minn og samstarfsfélagi í 30 ár Birgir Haraldsson fagnaði í gær fimmtugs afmæli sínu með glæsibrag. Samstarf okkar hófst árið 1979 og höfum við frá þeim tíma m.a. hljóðritað saman 8 hljómplötur og farið saman hundrað hringi í kringum Ísland.
Birgir er ekki einungis stórkostlegur söngvari og engum líkur sem slíkur. Heldur er hann einnig, ein besta manneskja sem ég hef nokkru sinni kynnst. Skemmtilegur, heiðarlegur og laus við alla tilgerð.
Til hamingju með áfangann elsku vinur.
Auðvitað var mikið sungið og spilað í veislunni og m.a. tókum við félagarnir í Gildrunni tvö lög. Andvökunætur og Mærina og mikið höfðum við gaman að því.
Myndin var tekin af okkur eftir uppákomuna í gær.
Sigurgeir, Jói Ásmunds, Biggi Haralds og Kalli Tomm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)