Síðasta plata Gildrunnar

Gildran í 10 ár

Að þessu sinni leið lengri tími hjá okkur félögunum á milli platna en nokkru sinni. Fyrstu fimm komu með nánast árs millibili en það liðu fjögur ár á milli Út og Gildran í tíu ár.

Gildran í 10 ár innihélt safn laga okkar allt frá upphafi ásamt sex nýjum lögum og þar af einu tökulagi, House of the rising sun. Það er svolítið athyglisvert hversu margir töldu og hafa talið Gildruna hljómsveit sem að mestu hljóðritaði tökulög en það er af og frá. Hljómsveitin hljóðritaði aðeins tvö slík á sex hljómplötum. Eflaust hafa miklar vinsældir á útgáfu okkar á Vorkvöldi í Reykjavík ruglað marga í ríminu og eins útgáfa okkar, þó nokkuð seinna, á lögum Creedence Clearwater Revival átt þátt í þeim misskilningi. Nánar um þá hljómplötu síðar.

Gildran 10 ár

Gildran í tíu ár var tvöfaldur diskur og eins og áður segir innihélt hann bæði ný lög og eldri. Diskurinn seldist eins og heitar lummur og bókstaflega hvarf á einu augabragði. Vissulega var upplagið ekkert stórt en samt 4- 5000 eintök. Ég held bókstaflega að það mætti koma með annan eins pakka af honum aftur til landsins.

Í plötudómi á tonlist.is segir m.a. um diskinn:

Þó svo Gildran hafi ekki komið fram með nýtt efni síðastliðin mörg ár eru þeir til sem neyta að trúa því að dagar hennar séu taldir og segja sveitina eitt fárra melódískra rokkbanda sem starfað hafi hér á landi, Söngvari sveitarinnar eigi sér enga jafningja hér þegar að rokksöng komi og þeir félagar Þórhallur og Karl séu réttu mennirnir með honum.

Sá stallur sem þeir standi á í íslenskri rokksögu ætti að vera svo mikið hærri en hann er. Sveitin hafi starfað í yfir áratug og það hafi þurft tvöfalda plötu til að skila bestu lögum sveitarinnar á safnplötu og hvíli þó lög hjá garði.

Útkoma alls þessa sé að rokksveitin Gildran eigi hásætið skilið í rokkflóru íslenskrar tónlistarsögu. Þegar farið er yfir efni sveitarinnar getur maður ekki annað en tekið undir þessar fullyrðingar og vonað með aðdáendunum að þeir komi saman á ný.

Bárður Örn Bárðarson

Gildran 10 ár +

Ég vona innilega að við eigum einhvertímann eftir að telja í lag aftur og jafnvel skella nokkrum inn á plötu. Sá félagsskapur og sú vinátta allra sem að Gildrunni komu var heil og sönn og gleymist aldrei.

Gildrufélagar

Á löngum ferli eru vissulega margir hápunktar en fyrir okkur félagana að fá tækifæri til að hita upp fyrir, Uriah Heep, Status Qvo, Nazareth og Jethro tull var auðvitað ógleymanleg lífsreynsla. Allt tónlistarmenn og hljómsveitir sem við bárum mikla virðingu fyrir og höfðum í gegnum tíðina hlustað mikið á. 

Samt er það nú þannig eins og margir frægir tónlistarmenn hafa sagt, að tónleikar fyrir 50 - 100 manns geta oft gefið meira og slíka tónleika eigum við marga í minningunni.   


Fjórar hæðir í viðbót hefðu gert gæfu muninn

Kjarni

Ég velti oft fyrir mér þeirri feimni okkar Íslendinga að reisa há hús. Há hús geta í senn verið óhemju tignarleg og falleg og síðast en ekki síst frá öllum sjónarmiðum verið hagkvæm.  Auðvitað skiptir  staðsetning þeirra öllu máli, það segir sig sjálft. 

Ég hef skrifað um það nokkru sinni að ég gæti vel hugsað mér eina til tvær slíkar byggingar í Mosfellsbæ. Það eru of mörg dæmi um misheppnaðar Þriggja, fjögurra hæða blokkir staðsettar í miðjum íbúðarhverfum þar sem þær ræna jafnvel oftar en ekki smærri íbúðarhúsum öllu útsýni og skemma jafnvel fyrir allri heildar ásýnd fallegra hverfa.

Mikið held ég t.d. að ráðhúsið okkar (Kjarni) hefði verið fallegri og reisulegri bygging þremur til fjórum hæðum hærri. Ég nefni það nú bara sem dæmi. 


Bloggfærslur 13. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband