Hestadella

Bleikur frá Torfunesi.

Bleikur frá Torfunesi

Ekki fæ ég með nokkru móti skilið hvaðan dóttir mín hefur óstöðvandi hestadellu. Ekki það að hestar eins og önnur dýr eru mér alltaf hugleikin. Sú stutta fékk það í gegn að fara á reiðnámskeið og ég veit nákvæmlega hvernig það endar. Auðvitað á því að nú sé ráð að fá sér hest.

Satt að segja hef ég lúmskt gaman af þessu öllu saman, verst er að ég veit að þetta endar með hrossarækt áður en langt um líður.

Allar athugasemdir og ráð eru vel þegin. 

 


Farið að húma

Farið að húma

Ekki man ég nákvæmlega hvenær myndin, Farið að húma, var máluð.


Á puttanum úr Mosó

Pabbi minnÞað þekkja margir Mosfellingar að hafa farið á puttanum úr Mosó til Reykjavíkur. Það þótti á sínum tíma mjög eðlilegur ferðamáti. Oftar en ekki stóð maður á þjóðbrautinni, Vesturlandsvegi, fyrir framan Þverholt, baðandi út öllum skönkum í von um far til höfuðborgarinnar.

Fyrsta skiptið sem ég fékk að gera þetta er mér ógleymanlegt. Það að fá, að fara, einn með góðum vinum til höfuðborgarinnar bar vott um að nú væri maður að verða fullorðinn. Þetta voru stór tímamót.

Í minni fyrstu ferð keypti ég styttu handa pabba og ég man hvað ég var stoltur af því þegar ég færði honum hana þegar ég kom heim. Þessa styttu var pabbi alltaf með á skrifborðinu sínu og eftir hans dag fékk ég hana og geymi.


Bloggfærslur 11. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband