sun. 1.6.2008
Ţegar ég seldi UAZ, ţá glćsi bifreiđ
Ég hef í gegnum árin nokkrum sinnum fengist viđ sölumennsku og alltaf haft jafn gaman af. Hápunkturinn hjá mér í ţví starfi var ţegar Halldór, heitinn, Snorrason stofnandi Ađalbílasölunnar réđi mig til starfa á sinni gömlu og ţekktu bílasölu.
Sérstaklega er mér minnisstćtt atvinnu viđtaliđ sem ég átti viđ Halldór og margar ţćr spurningar sem hann lagđi fyrir mig, rokkarann, međ háriđ niđur á mitt bak. Ein ţeirra var t.d. sú afhverju ég vćri međ svona sítt hár og hvort til greina kćmi hjá mér ađ láta klippa ţađ. Ég sagđi strax viđ Halldór ađ ţađ kćmi ekki til greina. Hann sagđi ađ loknu viđtalinu viđ mig ađ hann myndi hringja í mig og láta mig vita á hvorn veginn sem fćri varđandi umsókn mína um starf hjá honum. Nokkru síđar hringdi Halldór í mig og bauđ mér ađ koma til reynslu og mikiđ var ég spenntur ađ fá ađ spreyta mig hjá ţeim gamla, ég sem var og er bókstaflega forfallinn bíladellu karl.
Viđ Ađalbílasöluna starfađi ég í rúm tvö ár og mikiđ óskaplega var ţađ ógleymanlegur og skemmtilegur tími. Halldór var sölumađur engum líkur og međ ótrúlega hćfileika sem slíkur. Mannţekkjari, sálfrćđingur, ótrúlega minnugur á nöfn viđskiptavina og allt sem viđ kom sínu starfi. Hann vissi nákvćmlega hverjir voru í kauphugleyđingum og hverjir ekki og benti mér oft á ţađ ef honum fannst ég vera ađ eyđa óţarfa tíma í einhverja sem voru ekki líklegir á međan ađrir biđu.
Mér er sérstaklega minnisstćtt ţegar sá gamli skammađi mig fyrir eitt slíkt atvik. Ţá var ég í nokkurn tíma búinn ađ gera allt sem í mínu valdi stóđ til ađ koma gömlum UAZ Rússajeppa í gang međ startköplum á bílasöluplaninu og ekkert gekk. Hann sagđi viđ mig ţegar ég kom inn og spurđi hvort ekki vćri til kađall til ađ draga drusluna í gang "Kalli minn, hćttu ađ eyđa tíma í ţessa vitleysu, ţennan bíl selur ţú ekki" Til ađ gera langa sögu stutta hrökk gamli Rússajeppinn ekki í gang, ţrátt fyrir endalausan drátt um alla borg en mikiđ ósköp var Halldór stoltur af síđhćrđa rokkaranum ţegar hann gekk frá sölusamningnum og nýi eigandinn af Rússanum dró bílinn heim til sín.
Halldór sagđi viđ mig ađ honum hefđi ekki ţrátt fyrir langan tíma í faginu tekist ađ selja bíl sem ţurft hefđi ađ draga út af bílasölunni eftir marg ítrekađar gangsetningar tilraunir.
Ekki fylgir sögunni hvort gamli Rússinn komst nokkru sinni í gang. Af ţessu sölu "afreki" mínu var ég alltaf jafn stoltur og montinn. Ég vildi samt sem áđur óska ţess ađ ég ćtti ţennan forláta UAZ húsbíl í dag.
Á dögunum fékk ég einn besta sölumann Íslands í heimsókn, söngvarann og tónlistarmanninn góđkunna, Herbert Guđmundsson. Ţvílíkur sölumađur og snillingur í faginu er mađurinn. Ţađ rifjuđust upp fyrir mér svo margir taktar frá Halldóri gamla í ţann stutta tíma sem Herbert dvaldi hjá mér.
Já fátt er skemmtilegra en ađ heyra góđa sölumenn spreyta sig.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)