Ekki virðist það ætla að fara vel af stað

Ótrúlegar ásakanir má nú sjá og lesa frá nýjum stjórnarmanni Varmársamtakanna og viti menn, hvar annarsstaðar en á síðu Valda nokkurs Sturlaugz. Reyndar hefur þessi nýi stjórnarmaður verið drjúgur og duglegur að skrifa á þá síðu undanfarna mánuði. Heimasíðu sem haldið hefur verið úti í eitt ár til þess eins að herja sérstaklega á einn lýðræðislega kjörinn bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ, Vinstri græn og nokkrar aðrar persónur sem hafa leift sér að gagnrýna vinnubrögð Varmársamtakanna.

Þrátt fyrir að Varmársamtökin hafi verið með tengil á þessa síðu svo mánuðum skipti en síðar séð ástæðu til að klippa á öll tengsl og svarið af sér allt sem á þeirri síðu hefur farið fram, lætur nýkjörinn stjórnarmaður í samtökunum, Ólafur Ragnarsson verða sitt fyrsta verk að tjá sig á umræddri síðu. Það er undarlegt að hann kjósi ekki frekar að tjá sig á heimasíðu Varmársamtakanna. 

Í dag skrifar Valdi þessi svohljóðandi texta:" Á bloggsíðu nokkurri sá ég yfirlýsingu þess efnis að Ólafur Ragnarsson hefði verið beittur þrýstingi (af VG og Sjöllum) til þess að ganga í samtökin og höggva að þeim innan frá".

Nýkjörinn stjórnarmaðurinn Ólafur svarar:" Það er rétt Valdó með VG og Sjallana varðandi yfirtökuna" 

Um bæjarstjórann, Harald skrifar stjórnarmaðurinn Ólafur: "Já Valdi nú líst mér á þig… ég held nú að Halli hagsmunaseggur hafi nú ekki mikinn áhuga á hillbillígolfi og dalstúrisma… en það væri reynandi að koma Kalla í kúlustuð"

Ef þetta er tónninn sem koma skal hjá nýju stjórnarfólki Varmársamtakanna þá spyr ég. Ætlast samtök sem vilja láta taka sig alvarlega til þess að svo verði, þegar farið er með slíkt fleipur?

Nú segi ég við þig Ólafur. Þú ert ekki lengur "bara" Óli í Hvarfi, þú ert stjórnarmaður í samtökum sem telja sig ópólitísk umhverfissamtök og leggja þunga áherslu að láta taka sig alvarlega sem slík.

Nú krefst ég þess að nýi stjórnarmaðurinn svari hér á minni síðu nokkrum spurningum um skrif sín.

1. Hvenær og hvaða fulltrúar Vinstri grænna í Mosfellsbæ skoruðu á þig að gefa kost á þér til setu í stjórn Varmársamtakanna til að höggva í starf þeirra innan frá?

2. Á síðustu tveim aðalfundum Varmásamtakanna þar sem á þeim fyrri stóð til að fara í stjórnakjör og á þeim síðari í gær fór fram stjórnarkjör, hversu margir af áhrifamönnum VG í Mos sáu ástæðu til að mæta og taka þátt í kosningu og reyna þar með að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna?

3. Um hvaða dömu sem elskar óelskuna vitið þið að hafi staðið á bakvið skrif sem ungviðið  þurfti svo að bera sök á og fórna sér fyrir. Hver er daman og hvert er ungviðið og hverjir eru þessir þið?

Ég hvet þig til að svara þessum spurningum mínum eða að biðjast á þeim afsökunnar á síðu minni og Varmársamtakanna.


Víti til varnaðar

LabradorMig langar til að deila með ykkur sorglegri sögu um hund foreldra minna sem dó á hörmulegan hátt og er mér svo minnisstæð og öllum sem að komu. Foreldar mínir sendu frásögn um þetta slys í Sám, blað Hundaræktarfélags Íslands á sínum tíma.

Þannig er að mamma og pabbi áttu labrador hund sem hét Reynir Rex, hann var hugljúfi allra sem hann þekktu svo ekki sé nú talað um pabba, samband þeirra var einstkat allt frá upphafi. Rex, eins og hann var ávallt kallaður fékk alltaf að valsa um allt heimili foreldra minna rétt eins og allir aðrir, öllum stundum. Einu skiptin sem Rex var lokaður inni í þvottahúsi, þar sem hans bæli var og honum leið alltaf vel í, var þegar mamma og pabbi þurftu að bregða sér af bæ í skamma stund, sérstaklega ef von var á póstinum um svipað leiti. Rex átti það nefnilega til að rífa og tæta allan póst sem hann sá og póstburðamenn voru ekki í sérstöku uppáhaldi hjá honum.

Einn daginn þegar foreldrar mínir komu heim eftir slíka ferð og gengu inn í húsið sitt, var allt undirlagt móðu sem kom frá þvottahúsinu. Þegar þau opnuðu dyrnar lá Rex dáinn á gólfinu og úr heitavatnsslöngu frussaðist heitt vatn um allt. Rex hafði tekist að skrúfa frá heitavatnskrana sem úr lá c.a. meters löng slanga sem hafði slengst um allt af fullum krafti, greinilega í nokkurn tíma.

Þannig var, að á inntaksgrindinni fyrir heita og kalda vatnið sem var inn í þvottahúsinu voru tveir kranar sem voru báðir eins og handfang og eru mjög algengir á slíkum grindum. Einungis ein hreyfing getur gert það að verkum að frá þeim er skrúfað að öllu afli. Svo virðist sem að Rex hafi í einhverju óðagoti fálmað upp í grindina, sennilega orðið var við einhverjar mannaferðir við húsið og þegar hann hefur farið niður rekist í heitavatnskranann með þessum hörmulegu afleiðingum.

Blessuð skepnan átti sér enga von þar sem slangan með bull sjóðandi vatninu hefur slengst um allt og á endanum hefur heita vatnið og gufan gengið frá Rex sem átti sér enga útgönguleið.

Eins og ég sagði hér í upphafi langaði mig aðeins að segja þessa sögu, sem hafði á okkur öll sem komum að, svo mikil áhrif til að vekja athygli á hættum sem geta reynst á heimilum okkar. Ekki aðeins fyrir dýr heldur einnig jafnvel börn. Krana af þessu tagi þarf ekkert afl eða kúnst til að skrúfa frá þannig að úr þeim fossi jafnvel  eins og í þessu tilfelli sjóðandi heitt vatn.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.


Bloggfærslur 9. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband