Næst fallegasta sveitin

MývatnAlltaf um þetta leiti verður mér hugsað til daganna í sveitinni. Annað hvort var maður nýfarinn eða rétt ófarinn. Ég var svo heppinn að dvelja yfir sumartímann í næst fallegustu sveit landsins, svo ekki sé nú talað um hvað fólkið á sveitabænum mínum var yndislegt.

Símanúmerið á mínum bæ var ein stutt, ein löng og tvær stuttar. Þegar það var hringt á minn bæ vissi hún Bogga mín alltaf hver var að hringja, það var svo misjafnt hvað þessar löngu og stuttu voru langar og stuttar hjá þeim sem hringdu. Ég náði því aldrei hvernig hún Bogga fór að því. 

Bogga var ótrúlega flink á síman, hún setti sig alltaf í ákveðna stellingu áður en hún hringdi og svo allt í einu snéri hún sveifinni með slíkri sveiflu og list að unun var á að horfa. Aldrei tókst mér þetta þau ár sem ég var í sveitinni, ég hringdi alltaf á vitlausan sveitabæ. Hitt er annað að þegar ég reyndi virtist sem fólk af öðrum bæjum flykktist að símunum til að hlusta, þarna var einhver hringing sem engin kannaðist við. Þær stuttu og löngu í engum takti við það sem venjulegt gat talist. Stundum kom það fyrir að það var hnerrað eða hóstað á einhverri línunni, það þótti ekkert tiltöku mál.

Það var gaman í sveitinni.


Bloggfærslur 8. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband