Sveitin og heita vatnið

Augl

 

Glæsitorg

 

Á laugardaginn fer fram vígsla á nýgerðu torgi við Þverholt, auk vígslu á útilistaverki eftir Kristin E. Hrafnsson og fræðsluskiltum við hitaveitustokk.  

Dagskrá Vígsluhátíðar:

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur.

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar Haraldur Sverrisson vígir hið nýja torg við Þverholt.

Karlakórinn Stefnir undir stjórn Gunnars Ben.

Formaður afmælisnefndar Samorku, Guðmundur Davíðsson og forseti bæjarstjórnar, Karl Tómasson vígja hið nýja útilistaverk, sem ber heitið “HUNDRAÐÞÚSUNDMILJÓN TONN AF SJÓÐHEITU VATNI.” og er eftir Kristin E Hrafnsson.

Fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, vígir nýtt fræðsluskilti við hitaveitustokk sem enn stendur við enda torgsins.

Að lokum leikur Orkusveitin – kvintett Reynis Sigurðssonar.

Kynnir er Helgi Pétursson, fulltrúi OR.

Að vígslu lokinni verður boðið upp á gönguferð fyrir þá sem það vilja á vegum Sögufélags Kjalarnes­þings og Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar (UNM) í samvinnu við Orkuveitu Reykjavík­ur. Um er að ræða fræðslugöngu með leiðsögn sem ber heitið „Sveitin og heita vatnið“. Gengið verður frá Kjarna, upp með Varmá og að Reykjum og meðal annars áð í Dælustöðinni á Reykjum. Bjarki Bjarnason er leiðsögumaður í ferðinni.

Tilefni hátíðarhaldanna er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, en þar er miðað við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni að standa að gerð útilistaverks í bænum.

Útilistaverkið er hringur, sex metrar að þvermáli. Undir verkinu er rennandi heitt vatn sem myndar gufu upp  úr 22  áletruðum grindum úr sögu hitaveitu og Mosfellsbæjar. Í miðju verksins er ljósastaur sem lýsir upp hringinn, gufuna og gróðurinn í kring. Í ályktun  dómnefndar segir m.a.: „Hugmyndafræðilegur bakgrunnur nær á skemmtilegan hátt að samtvinna  sögu Mosfellsbæjar og sögu hitaveitunnar. Góð tenging er því bæði við sög­una, umhverfið og heita vatnið“. Gerð verksins varð samstarfsverkefni SAMORKU og Mosfellsbæjar.


Bloggfærslur 30. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband