fös. 2.5.2008
Frístundahandbók Mosfellsbæjar
Á Mánudaginn kemur verður dreift inn á öll heimili í Mosfellsbæ okkar árlegu og vönduðu handbók, Frístund 2008 - 2009.
Eins og flestir vita er þetta handbók sem hefur að geyma upplýsingar um fjölbreytt og skemmtilegt íþrótta- og tómstundarstarf í bæjarfélaginu fyrir fólk á öllum aldri. Að vanda er úr heilmiklu og vönduðu starfi að velja sem stýrt er af fagfólki og áhugasömum leiðbeinendum.
Handbókina má sjá á heimasíðu Mosfellsbæjar, mos.is
Ágætu Mosfellingar.
Mosfellsbær hefur löngum verið talinn fjölskylduvænn útivistarbær. Á meðal íbúa hans og bæjaryfirvalda ríkir einhugur um að viðhalda þeirri stefnu og ímynd fyrir bæjarfélagið. Ásókn eftir búsetu í Mosfellsbæ hefur aldrei verið meiri og segir það okkur vonandi að bæjaryfirvöld séu á réttri leið í mótun á fjölskylduvænu samfélagi. Bærinn státar af nokkrum glæsilegustu íþróttamannvirkjum landsins, sama hvar niður er borið. Allur sá fjöldi íþróttagreina, sem stundaður er innandyra sem utan-, býr við fyrsta flokks aðstöðu.
Þessa dagana er undirbúningur í fullum gangi vegna fyrirhugaðs ævintýragarðs á milli Varmár og Köldukvíslar, fuglaskoðunarhús rís brátt í Leiruvogi og skátar hafa unnið að gerð göngukorts í samvinnu við Mosfellsbæ. Einnig mun útivistaraðstaða við Hafravatn rísa bráðlega. Þar er m.a hugmyndin að setja upp bryggju sem mun gerbreyta aðstöðu þeirra sem vilja fara út á vatnið.
Frístund hefur komið út um þetta leyti árs um nokkurra ára skeið. Blaðinu er dreift inn á öll heimili í Mosfellsbæ og verður vonandi kærkomin sending. Ég hvet alla Mosfellinga til að kynna sér vel það gróskumikla tómstundastarf sem blómgast í bæjarfélaginu og kynnt er á síðum Frístundar.
Gleðilegt sumar.
Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
fös. 2.5.2008
Að rekast á gamla vinkonu
Mér til ómældrar ánægju fann ég "stórvinkonu" okkar hjóna á netinu, söngkonu, sem ég var næstum búinn að gleyma. Ég hafði gert nokkrar tilraunir til að hafa upp á disk með henni í þeim ferðum sem við höfum farið erlendis en án árangurs. Auðvitað var ég búinn að leita af mér allan grun hér heima.
Diskana tvo sem við áttum með henni og höfðum hlustað á út í eitt lánuðum við fyrir löngu síðan. Nú er auðvitað kjörið tækifæri að auglýsa eftir þeim.
Hér er hún mætt sönkonan stórkostlega Phoebe Snow.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)