Horfðu tvisvar

Suzuki

Um nokkurt skeið hafa verið leiknar auglýsingar í útvarpi þar sem skorað er á bílstjóra í umferðinni að gá vel að sér og horfa tvisvar áður en lagt er af stað yfir gatnamót. Þetta eru auðvitað góð skilaboð og orð í tíma töluð nú um þetta leyti þegar mótorfákunum fjölgar með degi hverjum í umferðinni.

Í dag varð ég vitni af því að engu mætti muna að stórslys yrði einmitt vegna þess að svo virtist sem bílstjóri hafi ekki séð mótorhjól sem kom brunandi áður en hann lagði af stað yfir gatnamót. Sem betur fer fór allt vel.

Það sem hinsvegar situr eftir hjá mér, þar sem ég var næstur á eftir bílstjóranum sem ók næstum á bifhjólamanninn, var hraðinn á mótorhjólinu. Hann var sennilega helmingi meiri en leyfilegt er á þessum vegarkafla og langt umfram allt sem yfir höfuð getur kallast skynsemi.

Einhvernvegin virðist sem sumir mótorhjólamenn séu eins og kýr að vori, gersamlega stjórnlausir.

Mótorhjólamenn og auðvitað allir í umferðinni, endilega temprið hraðann.


Bloggfærslur 13. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband