lau. 5.4.2008
Það fara fáir í skóna hans Bigga
Það var gaman að heyra unga manninn í þættinum, Bandið hans Bubba, spreyta sig á útgáfu Gildrunnar á Vorkvöldi í Reykjavík. Drengurinn lagði sig greinilega allan fram eins og fram kom hjá dómurunum og leysti það ágætlega en samt vantaði talsvert uppá. Það fór ekki fram hjá þeim, frekar en væntanlega mörgum áhorfendum.
Það var fyndið að heyra Bubba segja að þetta hafi verið flutningur eins og hjá múmíu á sterum og ef eitthvað væri þá myndi Ragga Bjarna frekar takast að vekja hana frá dauðum en Gildrunni. Það var einnig fyndið að heyra Björn Jörund segja að Gildran hafi eyðilagt lagið.
Ég er á þeirri skoðun og í raun veit, að Gildran gaf laginu heljarinnar púst með útgáfu sinni og vakti á því landsathygli hjá annars fólki sem seint eða aldrei hefði áttað sig á þessu stórkostlega lagi. Vinsældirnar hljóta að segja meira en mörg orð um það.
Í svona þáttum átta áhorfendur sig oft á því hver munurinn er á reyndum og frammúrskarandi flytjendum og hinum sem eru að stíga sín fyrstu skref, sem þó hafa hljómað ágætlega á ættarmótum, skólaböllum eða sveitaböllum. Þar skilur hins vegar himinn og haf að.
Ég var ánægður með drenginn unga, mér fannst hann viðkunnanlegur og áræðinn að ráðast í þetta lag í okkar útsetningu. Það er á fárra færi að klára það með stæl. Ég er einnig ánægður með drengina tvo sem eftir eru. Þeir eru báðir flottir söngvarar og Eyþór, sá ljóshærði, ótrúlegur söngvari og performer aðeins 18 ára gamall.
Það eru sannarlega orð að sönnu hjá Bubba að bandið í þættinum er súpergrúppa, valinn maður í hverju rúmi. Undiröldunni í Vorkvöldinu náðu þeir hins vegar engan veginn. Ég veit að ég er hundleiðinlegur og eflaust hrokafullur að segja þetta og skrifa en ég hlýt að mega það. Súpergrúppur hafa verið stofnaðar marg oft og flutt lög annarra flytjenda en Þar vantar oft mikið upp á til að ná neistanum eins og flestir vita og það gerðist hjá köppunum í þetta skiptið.
Birgi, vini mínum Haraldssyni, söngvara Gildrunnar kynntist ég fyrir 30 árum og höfum við átt frábært samstarf alla tíð. Birgir er stórkostlegur rokksöngvari sem á sér fáa líka þótt víða væri leitað. Það vita allir sem hafa hlustað á Gildruna og séð og heyrt Bigga syngja.
Fyrst og fremst er hann samt yndisleg manneskja, laus við alla tilgerð og leikaraskap. Það er svo aftur hlutur sem virðist oft nauðsynlegt að hafa í poppbransanum sem og í lífinu sjálfu.
Þannig er það nú bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)