Lýðræði eða ekki.

Aðalfundur Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar sem haldinn var s.l. þriðjudag heppnaðist í alla staði mjög vel. Hann var í senn fróðlegur og skemmtilegur. Fyrirlestur Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings og myndasýning var sérstaklega áhugaverð. Stjórn félagsins verður sú sama og undanfarið ár, skipuð þeim Guðjóni Jenssyni formanni, Vigdísi Pétursdóttur og Bjarka Bjarnasyni.

Framundan er nú öðru sinni aðalfundur Varmársamtakanna en flestum er kunnugt um hvernig fyrsta aðalfundinum lyktaði. Fyrir þann fund var skorað á fólk að gefa kost á sér í framboð og til stjórnarsetu og skilaði sú áskorun árangri. Dæmi voru um talsverðan undirbúning á meðal þeirra sem gáfu kost á sér. Þegar komið var að liðnum um kosningu til stjórnar var sá hluti fundarins, öllum að óvörum, blásinn af . Í kjölfarið leystist fundurinn upp og að sögn fundargesta olli sú afgreiðsla bæði hneykslan og vonbrigðum.

Nú er spurning hvort lýðræðið fái að njóta vafans í annarri tilraun Varmársamtakanna. Það er engan veginn Varmársamtökunum til framdráttar sem hafa endalaust hamrað á ólýðræðislegum vinnubrögðum hjá bæjaryfirvöldum Mosfellsbæjar í fjölmiðlum og á hvaða vettvangi sem er, að láta slík vinnubrögð spyrjast út um sig.

Það má líka spyrja sig hvort í raun lýðræði sé fólgið í því að láta fámennan hóp fólks, sem virðist hafa flest á hornum sér gagnvart bæjarfélaginu og framkvæmdum því tengdu, sama hvort um veglagningar er að ræða, lagningu nýs knattspyrnuvallar, lagningu göngustíga eða hönnun og framkvæmdir við nýtt miðbæjartorg svo eitthvað sé nefnt, bitna á þorra bæjarbúa, ekki einungis með neikvæðum skrifum heldur einnig með kærum og málaferlum. Slíkt kostar bæjarfélagið og þegna þess óhemju fjármuni. Þess vegna er það afar mikilvægt að ígrunda  alltaf vel  forsendur og tilgang slíkra málaleitanna. 


Bloggfærslur 30. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband