Mikið eru þetta kunnugleg orð í mínum eyrum. Með allt niðrum sig í umhverfismálum.
þetta virtist um tíma, hreinlega vera slagorð Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ og um land allt gegn Vinstri grænum vegna þá fyrirhugaðrar veglagningar í Mosfellsbæ fyrir ofan Álafosskvos. Eftir síðastliðnar sveitastjórnarkosningar og fyrir alþingiskosningar bættust Þingmenn, ráðherrar, fyrrverandi og núverandi og sveitarstjórnarmenn Samfylkingarinnar um land allt í hópinn og tóku þátt í fjörinu og notuðu hvert tækifæri til að koma þeim skilaboðum í alla fjölmiðla að þessi vegaframkvæmd í Mosfellsbæ væri gott dæmi um óáræðanleika Vinstri grænna í umhverfismálum þegar flokkurinn kæmist loks til valda.
Mikill var gauragangurinn, fjölmiðlafárið og leyfi ég mér að segja sýndarmennskan. Allt vegna löngu ákveðinna vegaframkvæmda í Mosfellsbæ. Svo virðist sem veiðileyfið sem gefið var út í nafni umhverfissamtaka á einstaka manneskjur og málefni hafi höfðað sérstaklega til Samfylkingarinnar, ekki einungis í Mosfellsbæ, heldur um land allt. Oft hefur verið langt seilst í þeim efnum.
Veglagninguna frægu í Mosfellsbæ og framkvæmdir henni tengdri átti ekki einungis að nota til að koma höggi á Vinstri græn í Mosfellsbæ, heldur umhverfisstefnu heils flokks á landsvísu sem hefur skýrast og sterkast allra flokka haft hana að leiðarljósi allt frá stofnun.
Hernað gegn landinu kaus Össur Skarphéðinsson að kalla þessar vegaframkvæmdir hjá okkur Mosfellingum á bloggi sínu. Ég skrifaði um þessi skrif Össurar á bloggi mínu í maí s.l. og sagði m.a. eftirfarandi:
"Ég vona satt að segja að 500 metra vegakaflinn í Mosfellsbæ verði viðmið Össurar og Samfylkingarinnar í umhverfismálum næstu fjögur árin".
En hvað er nú að koma á daginn? Ef hægt er að kalla vegaframkvæmir í Mosfellsbæ hernað gegn landinu, hvað er þá hægt að kalla nýjasta útspil Samfylkingarinnar í virkjunarframkvæmdum? Eins og fram hefur komið, gengur þessi veruleiki þvert á yfirlýsta stefnu Samfylkingarinnar gagnvart stóriðjuverkefnum.
Hvar er stóriðjustoppið mikla? Hvar eru hinir iðjagrænu fingur Samfylkingarinnar sem henni hefur verið svo mikið í mun að reyna að ná af Vinstri grænum? Hvað varð um hin raunverulegu og sönnu umhverfismál sem einhverju skipta, fyrir land og þjóð þegar Samfylkingin fékk loks tækifæri til að láta að sér kveða í þeim efnum?
Í Mosfellsbæ myndum við Vinstri græn öflugan meirihluta með Sjálfstæðismönnum og hefur samstarfið bæði verið gott og skemmtilegt. Aðkoma okkar Vinstri grænna að því ætti ekki að hafa farið framhjá neinum.
Flokkarnir hafa veri mjög samstíga allt frá upphafi og náð bróðurlegu samkomulagi um öll sín helstu áhersluatriði, áreynslulaust. Umhverfismál skipa þar að sjálfsögðu veglegan sess. Fjölmörg spennandi verkefni eru framundan í þeim málaflokki ásamt nokkrum frágegnum og stórum áherslumálum okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Má þar m.a. nefna: ráðningu umhverfisstjóra og stórherta áherslu á Staðardagskrá 21.
Aukning til umhverfismála í Mosfellsbæ nema 160% á milli ára.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)