Mikill er munurinn

Eftir langvarandi sambandsleysi viđ umheiminn er ég nú loks tengdur. Tölvutengdur. Mikill er munurinn og léttirinn og tengingin í Tungunni er sko ekkert frat, ţađ er ljósleiđari. Ég ţakka góđar heimsóknir og kveđjur sem ég og mín fjölskylda höfum fengiđ undanfarna daga, viđ erum alsćl í Leirvogstungu.

Árshátíđ Mosfellings

Um síđustu Helgi var árshátíđ Mosfellings haldin og eins og viđ var ađ búast lukkađist hún stórkostlega. Ţar var saman kominn hópur vina og kunningja og velunnara blađsins. Sérstakir gestir voru Geirmundur Valtýsson og Bjartmar Guđlaugsson, á međan ţeir sungu og léku öll sín ţekktustu lög var undir tekiđ af miklum krafti og var stemningin óborganleg.

Á árshátíđinni voru ađ venju heiđrađir tveir einstaklingar og ađ ţessu sinni voru ţađ Einar Páll Kjćrnested fasteignasali og Hjördís Kvaran Einarsdóttir. Ţau hafa hvort á sinn hátt lagt Mosfellingi ómetanlegan stuđning í gegnum árin og allt frá upphafi. Ţessi viđurkenning blađsins var tekin upp á síđasta ári og ţá hlutu hana Gylfi Guđjónsson ökukennari og fyrrverandi blađamađur í Mosfellsbć og Haraldur Sverrisson ţá verđandi bćjarstjóri og núverandi bćjarstjóri Mosfellsbćjar. Mosfellingur lét hanna sérstakt gullbarmmerki (gull M) sem ţessum einstaklingum var fćrt viđ tilefniđ. Gull M- iđ er stórriddarakross Mosfellings.

Ađ lokum vil ég nota tćkifćriđ og óska tveimur mönnum sem eru mér báđir mjög kćrir innilega til hamingju međ stórafmćli sín. Helga Pálssyni, 40 ára (HP FOSS) og Steinari bróđur mínum 50 ára.

Hér koma nokkrar myndir frá árshátíđinni og ađ gamni set ég einnig inn eina gamla af okkur brćđrum sem tekin var á Álafoss föt bezt.    

mosfellingur1    

mosfellingur11

mosfellingur8

mosfellingur6

mosfellingur5

mosfellingur10

mosfellingur4

mosfellingur3

Brćđur


Bloggfćrslur 16. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband