fim. 21.2.2008
Fréttamatiđ er oft athyglisvert
Eins og ég bendi á í fćrslu hér fyrir neđan hefur nú veriđ undirritađur samningur um byggingu framhaldsskóla í Mosfellsbć. Ţetta eru mikil og stór gleđitíđindi fyrir okkur Mosfellinga. Mbl gerđi ţessu ágćtis skil í gćr. Í Fréttablađinu og 24 stundum var frá ţessu greint í smádálk á stćrđ viđ eldspýtnastokk og Rúv sá ekki ástćđu til ađ fjalla um máliđ.
Í Morgunblađinu í dag er lögđ hálf síđa undir umfjöllun um lagningu göngustígs í vćntanlegu Helgafellshverfi. Gunnlaugur B Ólafsson og Sigrún Pálsdóttir hjá Varmársamtökunum gera stórkostlegar athugasemdir viđ vćntanlegan göngustíg ţar sem hann verđur malbikađur, ţau telja ađ hann eigi ađ vera stráđur trjákurli eđa malarstígur ţar sem hann liggur á kafla nćrri Varmánni. Undir ţessa umrćđu var lögđ eins og áđur segir hálf síđa í Morgunblađinu í dag.
Lagning göngustíga međ kurli eđa möl í ţéttbýli tíđkast ekki í dag áriđ 2008. Slíkir göngustígar eru ágćtir upp í miđjum fjallshlíđum. Göngustígar í ţéttbýli eru ađ sjálfsögđu gerđir međ ţađ í huga ađ gera öllum kleift jafnt, hjólandi, fótgangandi, fólki međ barnavagna eđa fólki í hjólastólum ađ ferđast um ţá međ góđu móti. Ein af náttúruperlum Reykjavíkur er laxveiđiá, međfram henni eru t.d. malbikađir göngustígar.
Auđvitađ er tćtingslegt um ađ litast á međan framkvćmdir standa yfir en ađ sjálfsögđu verđur allt lagt í sölurnar til ađ hafa lokafrágang á göngustígunum eins glćsilegan og kostur er.
Já, fréttamatiđ er oft athyglisvert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (28)