Eftir höfðinu dansa limirnir

Hinn bráðskemmtilegi og góðlegi ráðherra, Össur Skarphéðinsson hefur sætt talsverðri gagnrýni í dag vegna bloggfærslu sem hann setti inn hjá sér síðustu nótt. Össur er eins og margir aðrir ágætir bloggarar, næturbloggari. Ekki ætla ég að leggja mat mitt á hvort karlinn sötri á einhverju á meðan skrifin eiga sér stað eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum, enda nokk sama um.

Vegna umræddrar bloggfærslu hefur hann verið gagnrýndur fyrir að hafa veist harkalega að borgarfulltrúanum Gísla Marteini Baldurssyni. Ég get tekið undir það að uppskrúfaður texti ráðherrans að þessu sinni og orðaflaumur í garð Gísla í bloggfærslunni var á köflum hálf ómögulegur og hjákátlegur. 

Nú velti ég því fyrir mér, þar sem ég hef fengið minn skammt frá ráðherranum á bloggsíðu hans og samflokks fólki hans,  hvort innan raða Samfylkingarinnar þyki það bara gott og flott að bitrir og hálf skúffaðir flokksmenn og pennar reyni að láta ljós sitt skína á aumkunnarverðan hátt gagnvart mönnum og málefnum. Pennar þar sem blekinu er leyft að flæða út án nokkurs tillits til hvort skrifað er um manneskjur eða máva á tjörninni í Reykjavík?

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 


Bloggfærslur 20. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband