Fatlaðir fá aldrei aðgang að Gullfossi

Stundum hreinlega missir maður málið af undrun. Ég var að lesa bloggfærslu varaformanns Varmársamtakanna þar sem hann gerir athugasemdir við væntanlega göngustíga í kringum hið nýja Helgafellshverfi. Nú er það ekki einungis tengibrautin, heldur einnig göngustígarnir. 

Í Helgafellshverfi er verið að að vinna að gatna- og göngustígagerð og að sjálfsögðu er gert ráð fyrir að allir eigi þess kost að njóta umhverfisins með góðu móti, bæði fólk sem getur gengið og er bundið hjólastól. Varaformaður Varmársamtakanna Gunnlaugur B Ólafsson gerir á heimasíðu sinni athugasemdir við að göngustígarnir verði malbikaðir, hann segir að eðlilegra og umhverfisvænna sé að hafa þá stráða trjákurli eða möl.

Við þessa færslu Gunnlaugs hafa komið athugasemdir og einni þeirra svaraði hann orðrétt " Helgi, þetta er góð athugasemd. Ég held að hún haldi samt ekki. Við myndum aldrei gera breiðan malbikaðan stíg meðfram Gullfossi til að tryggja aðgengi fatlaðra"

Nú spyr ég, á ekki umhverfið að vera fyrir alla? Hvað er það að vera umhverfisvænn?

Karl Tómasson.


Bloggfærslur 17. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband