lau. 16.2.2008
Græna netið er ekki undir fölsku flaggi
Nýlega voru stofnuð samtök umhverfis- og náttúruverndarfólks sem kalla sig Græna netið. Á heimasíðu félagsins segir orðrétt:
Nokkrir áhugamenn innan Samfylkingarinnar stofnuðu 13. október sl. nýtt félag umhverfis- og náttúruverndarfólks. Vinnuheiti félagsins er Græna netið - félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina.
Ég vil nota tækifærið og óska þessum nýju samtökum velfarnaðar.
Fyrir tæpum tveimur árum voru stofnuð umhverfissamtök í Mosfellsbæ sem kalla sig Varmársamtökin, allt frá upphafi lögðu þau þunga áherslu á að auglýsa sig sem þverpólitísk samtök.Undirrituðum var fljótlega ljóst að þar var flaggað undir fölsku flaggi og skrifaði um það nokkrar greinar. Endalokin á þeirri sögu þarf ekki að tíunda, öllum eru þau kunn.
Nú hafa verið stofnuð ný samtök og á þeim bænum er ekkert farið í grafgötur með tengsl við Samfylkinguna. Ritstjóri á heimasíðu nýju samtakanna er Sigrún Pálsdóttir, aðaltalsmaður og gjaldkeri Varmársamtakanna og fyrsti bloggvinurinn er Gunnlaugur B Ólafsson, varaformaður Varmársamtakanna. Eitt fyrsta verk nýju samtakanna er m.a. að heimsækja Álafosskvosina og ræða deiluna um tengibrautina sem var aðal baráttumál Varmársamtakanna. Einnig verða bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ þau, Hanna Bjartmarz og Jónas Sigurðsson heimsótt.
Þarna er allt á yfirborðinu og innilegar hamingjuóskir með það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)