Nákvæmni, einbeiting, yfirvegun. Snóker

Það er að mörgu leiti furðulegt að þessi frábæra íþrótt hafi ekki öðlast meiri vinsældir á Íslandi. Við sem getum ekki svo mánuðum skiptir gert nokkurn skapaðan hlut að viti utandyra í íþróttum sökum veðurs.

Snóker hefur í áratugi verið næst vinsælasta sjónvarpsefni Breta á eftir fótboltanum enda er það ekki furða, það er mikil skemmtun að horfa á snillinga spreyta sig við borðið. Okkar færasti spilari var í mörg ár Kristján Helgason og ég held eini Íslendingurinn sem hefur haft íþróttina að  atvinnu.  

Steve Davis er án vafa einn frægasti snóker spilari allra tíma. Hann heimsótti Ísland á sínum tíma og tók nokkra sýningarleiki þegar íþróttin var í hvað mestum blóma hér á landi. Steve Davis var og er sérlega viðfeldinn og skemmtilegur íþróttamaður. 

Á þessu myndbandi sem ég birti með þessari færslu náði hann hæsta skori sem hægt er að ná í íþróttinni og var þetta í fyrsta skipti sem það gerðist í sjónvarpi. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá þarf að koma svörtu kúlunni í gat á eftir öllum rauðu til að það hafist og klára svo hina litina í réttri röð þar til borðið klárast. Fyrir það fást 147 stig og hærra er ekki hægt að komast í íþróttinni.

Endilega gefið ykkur 4 mín til að sjá þessa snilld.

 


Bloggfærslur 10. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband