miđ. 31.12.2008
Lćrir svo lengi sem lifir
Áriđ 2008 var mjög skemmtilegt og lukkulegt ár hjá mér og mínum og ţakka ég fyrir ţađ. Ţađ var einnig fyrir margar sakir lćrdómsríkt.
Viđ fluttum úr Álafosskvosinni í nýtt, fallegt og gott hús í Leirvogstungu. Fórum í bráđskemmtilega Spánarferđ međ ömmu Millý.
Amma, Birna og Lína á Spáni.
Ćttin hittist nánast öll á einstaklega skemmtilegu ćttarmóti á Hvammstanga á árinu.
Á ćttarmótinu skemmtilega.
Fórum međ Birnu í frábćrt ferđalag međ nýja tjaldvagninn í Stykkishólm og á Ţingvelli, ţar vorum viđ m.a. ţegar hitametiđ var slegiđ og upplifđum ţá hreint ćvintýri.
Ég og Hallsteinn, minn elskulegi frćndi ađ gera kóteletturnar klárar á grilliđ.
Sigga og Lína ađ gera Birnu fína á tjaldstćđinu á Stykkishólmi. Okkar góđu vinir, Hallsteinn og Sigga komu í heimsókn til okkar á tjaldstćđin í Stykkishólmi og áttum viđ saman einstaklega skemmtilegar stundir.
Ţetta er ein af mínum uppáhalds myndum af Birnu og auđvitađ tók Hallsteinn frćndi hana.
Amma Gerđur og Bćringur komu til okkar á heitasta degi sumarsins á Ţingvöllum og áttum viđ saman einstaklega góđa stund.
Sigrún systir, uppáhalds frćnka Birnu kom mjög óvćnt í heimsókn til okkar á Ţingvelli ţegar degi var fariđ ađ halla og ađ venju var Birna alsćl ađ sjá frćnku.
Ég var útskrifađur eftir mín veikindi í september af Sigurđi Björnssyni. Birna er ađ klára fjórđa áriđ í ballett hjá Brynju, í Ballettskóla Eddu Scheving og gengur vel og nú er hún einnig komin međ hestadellu. Óli er ađ venju á kafi í fótboltanum, hann hefur ćft međ Aftureldingu frá fimm ára aldri. Óli er allur ađ koma til eftir ţrálát meiđsl í ökkla frá ţví í haust og er farinn ađ ćfa ađ kappi ađ nýju.
Ţetta er nýleg mynd af Óla og Erlu, ţau eru einstaklega náin og góđ hvort viđ annađ.
Afi Óli fór á Skjól, hjúkrunarheimili og vissulega var ţađ erfitt en hann fćr góđa ummönun og hjálp viđ sitt hćfi og viđ heimsćkjum hann öll reglulega. Á myndinni er hann međ Birnu, Línu og Millý konu sinni.
Lína mín langsokkur, nei ég meina leikskólakennari, er alltaf á Reykjakoti og líđur vel ţar. Ţetta var nú svo eitthvađ sé nefnt úr fjölskyldulífinu á nokkuđ hrađri yfirreyđ.
Bćjarmálin í Mosó gengu vel á árinu og samstarf meirihlutans er traust og öflugt. Stóru málin á ţeim vettvangi eru vissulega, bygging vćntanlegs Krikaskóla, nýtt og glćsilegt miđbćjartorg međ einstaklega frumlegu listaverki, vinna viđ ćvintýragarđ er hafin, brátt rís menningarhús, kirkja og framhaldsskóli verđur stofnsettur í gamla Brúarlandshúsinu svo eitthvađ sé nefnt.
Starf okkar Vinstri grćnna í Mosfellsbć er blómlegra en nokkru sinni fyrr og hefur félögum fjölgađ meira en nokkru sinni fyrr á árinu sem senn er liđiđ.
Vinirnir Hilmar og Kalli.
Hilmar Gunnarsson, vinur minn, keypti Mosfelling, bćjarblađ sem ég stofnsetti og gaf út í tćp sjö ár. Vart gat ég hugsađ mér betri arftaka. Hilmar er samviskusamur fagmađur fram í fingurgóma, listrćnn og skemmtilegur.
Ađ lokum. Ţađ er einstakt ađ upplifa sanna vináttu, ţađ gerđi ég meir en nokkru sinni fyrr á ţessu ári. Ţađ er notaleg tilfinning. Vinátta er og verđur aldrei, hvorki keypt né seld. Annađhvort er hún eđa ekki.
Ég upplifđi einnig tilfinningu sem ég á erfitt međ ađ útskýra, ţađ er löngun til ađ hitta fólk sem ég hef einungis átt samskipti viđ í bloggheimum, fólk sem ég hef aldrei hitt en hefur međ skrifum sínum og ţankagangi, fallegum texta og einlćgni unniđ hug minn allan..
Góđ vinátta og samstarf byggist alltaf fyrst og síđast á gagnkvćmri virđingu.
Gleđilegt ár óska ég ykkur öllum kćru vinir, hafiđ ţađ alltaf sem best.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)