Frændur glíma

Eyþór Pétursson er af mörgum talinn einn af glæsilegustu glímuköppum Íslands fyrr og síðar. Hann er jafnframt einn sá sigursælasti. Hann þótti glíma af einstakri fegurð.

Krækjan hans varð einnig þekkt og engri lík eins og sjá má í þessu myndbandi.


Atvinnurekendur blésu okkur byr undir báða vængi

Torgið fallega

Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar stóðu fyrir hádegisfundi í Hlégarði í dag þar sem atvinnurekendum og fyrirtækjaeigendum í bæjarfélaginu var boðið að koma til skrafs og ráðagerða.

Óhætt er að segja að bæði mæting og hugur þess góða fólks sem að fyrirtækja- og atvinnurekstri stendur í bæjarfélaginu hafi blásið okkur bæjaryfirvöldum byr undir báða vængi. Ekki var á nokkurri manneskju að heyra  uppgjafartón, heldur miklu frekar jákvæðni og að nú skildi blásið til sóknar.

Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú ríkja og voru vissulega m.a. ástæða þess að fundurinn var haldinn, var það ómetanlegt að ganga út af honum með þá bjartsýni og einurð sem ríkti meðal allra fundargesta.

Hugurinn ber okkur hálfa leið.


Bloggfærslur 10. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband