fim. 27.11.2008
Það er hugur í okkur þrátt fyrir erfiða tíma
Þessa dagana eru bæjaryfirvöld og embættismenn Mosfellsbæjar að vinna að því og kanna hvernig hægt er að spara og draga saman í rekstri á þann hátt að það bitni sem mynnst á fjölskyldufólki og þeim sem síst meiga við því. þessi vinna er ærin og allir hafa lagst á eitt að reyna að milda höggið eins og best verður á kosið fyrir bæjarfélagið. Þó er það ljóst að í Mosfellsbæ eins og annarsstaðar þarf að skera niður á flestum sviðum til að mæta þeim erfiðu aðstæðum sem yfir okkur ganga þessa dagana.
Þrátt fyrir erfiða tíma er hugur í okkur og við erum öll einhuga um að fara í gegnum þá með eins mikilli reisn og mögulegt er. Halda áfram að verða fyrirmyndar bæjarfélag, þar sem fjölskyldan, skólarnir, menningin og blómlegt íþróttastarf verður ávalt í fyrirrúmi.
Á líflegum aðalfundi okkar Vinstri grænna í Mosfellsbæ sem haldinn var í gær og ég bloggaði um nýlega, ber þess helst að geta að sitjandi stjórn var kjörin að nýju með lófaklappi. Stjórnina skipa: Ólafur Gunnarsson, formaður, Einar Hólm Ólafsson, gjaldkeri, Jóhanna B. Magnúsdóttir, ritari, Högni Snær Hauksson og Bryndís Brynjarsdóttir.
Kjörnir voru tveir nýir varamenn, þau, Gísli Ársæll Snorrason og Alma Lísa Jóhannsdóttir. Gísla Ársæl þekkja flestir Mosfellingar en Alma Lísa flutti í bæjarfélagið ekki alls fyrir löngu. Alma Lísa er varaþingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi. Við bjóðum Ölmu Lísu sérstaklega velkomna í starfið með okkur.
Myndin er tekin á aðalfundinum í gær. Frá vinstri Högni Snær Hauksson, varaformaður Íþrótta- og tómstundarnefndar, Ólafur Gunnarsson, formaður Vinstri grænna í Mosfellsbæ, Bjarki Bjarnason, fundarstjóri, Karl Tómasson, Ögmundur Jónasson, og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en þau voru sérstakir gestir fundarins. Þau héldu bæði skemmtilega tölu á fundinum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)