sun. 23.11.2008
Aðalfundur Vinstri grænna í Mosfellsbæ
Næstkomandi miðvikudag, 26. nóvember kl. 20:00 verður aðalfundur Vinstri grænna í Mosfellsbæ haldinn í Hlégarði. Sérstakir gestir verða, Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Ég hvet sem flesta félagsmenn okkar að mæta og um leið leggja okkur lið, nú, að rétt rúmlega hálfnuðu kjörtímabili okkar í meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og með því hafa áhrif á okkar samfélag.
Félagsmenn Vinstri grænna eru nú fleiri en nokkru sinni fyrr í Mosfellsbæ og það er okkur vissulega mikið ánægjuefni ef þeir blanda sér í starfið með okkur og hafa með því áhrif á allt okkar starf.
Við höfum á okkar fyrsta kjörtímabili í bæjarstjórn Mosfellsbæjar komið mörgum af okkar áherslum í framkvæmd og öll sem eitt, lagt okkur fram um að gera gott samfélag betra.
Mosfellsbær er fallegt bæjarfélag sem státar af frábæru skólastarfi, einstakri útivistarparadís allt um kring, fyrsta flokks íþróttaaðstöðu og mjög fjölbreyttu menningarlífi. Það er án vafa öllum Mosfellingum kappsmál að ekkert verði slakað á svo bærinn geti státað af þessu öllu um ókomna tíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)