Vissulega gleðileg tíðindi en staðan er slæm

Úr Mosfellsbæ

Það eru vissulega gleðileg tíðindi fyrir okkur Vinstri græn að flokkurinn skuli nú mælast stærri en nokkru sinni fyrr. Það er samt þannig að ástandið í þjóðfélaginu gerir það að verkum að fáir gleðjast. Ekki einu sinni þrátt fyrir að hafa jafnvel fulla ástæðu til.

Við stöndum í baráttu um land allt sem við þurfum að vinna, öll sem eitt, baráttu sem er sennilega harðari en við gerum okkur grein fyrir.

Oft sem áður er sorglegt að lesa skrifin á heimasíðu Framsóknarmanna í Mosfellsbæ. Að þessu sinni er fuglaskoðunarhús í Mosfellsbæ aðal fréttin. Framsóknarmönnum og Samfylkingu í Mosfellsbæ er full kunnugt um það öfluga og góða starf sem unnið er af meirihluta bæjarstjórnar í Mosfellsbæ. Bæjarfélagið er mun betur statt en flest önnur nágrannasveitarfélög. Sú frétt var m.a. ein af aðal fréttum allra fréttamiðla á landinu þegar það kom í ljós nú nýlega.

Nei, fuglaskoðunarhúsið á nú að vera stóri skandallinn í Mosfellsbæ. Maður spyr sig, hvar eru mörkin?

 

Þetta er m.a framundan og búið að framkvæma í Mosfellsbæ á kjörtímabilinu.

Glæsilegt miðbæjartorg, 

útilistaverk,

ævintýragarður, 

fræðsluskilti,

gjaldfrír leikskóli fyrir fimm ára börn,

einstakur Krikaskóli,

framhaldsskóli,

hjúkrunarrýmisíbúðir,

fyrst til að skrifa undir jafnréttisstefnu allra bæjarfélaga,

menningarhús og svo framvegis og framvegis.

Er þetta allt saman aukaatriði ?

Mosfellsbær blómstrar. 


Bloggfærslur 30. október 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband