mið. 9.1.2008
Gamlar og skemmtilegar hefðir
Nú styttist í þorrablótin og við Mosfellingar ætlum að halda eitt slíkt og glæsilegt að vanda í íþróttahúsinu okkar að Varmá. Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að koma og eiga ánægjulega kvöldstund.
Bloggar | Breytt 10.1.2008 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mið. 9.1.2008
Hernaður gegn landinu!!!
Þessa færslu sem lesa má hér að neðan skrifað Össur Skarphéðinsson á heimasíðu sína undir nafninu Hernaður gegn landinu þá voru þrír mánuðir til alþingiskosninga. Það skal ég viðurkenna að ég grét úr hlátri þegar ég las þessa færslu Össurar á sínum tíma enda er hann skemmtilegur penni og örugglega skemmtilegur karl líka. Það er gaman að rifja þetta upp vegna fyrirhugaðs Álvers á Húsavík og áhuga Samfylkingarinnar á því.
Hér koma skrif Össurar
Á meðan hinir iðjagrænu vinir okkar í VG að taka á sig til skiptis hami Dr. Jekylls og Mr. Hyde í verndarmálum. Meðan Dr. Jekyll með glampandi skalla ættaðan af Gunnarsstöðum norður berst einsog vitlaus maður fyrir náttúruvernd á Alþingi er hann með Mr. Hyde með umhverfistagl lafandi úr hnakkagrófinni í stóli forseta bæjarstjórnar í Mosfellssveit. Þar hamast Mr. Hyde Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs einsog laminn þræll íhaldsins sem hann situr með í meirihluta í Mosfellsbæ og hafnar á báðar hendur sanngjörnum óskum um umhverfismat á veglagningu um viðkvæmustu svæði sveitarinnar á bökkum Varmár.
Oddviti VG í sveitinni er semsagt orðinn umskiptingur og virðist sérstakt kappsmála að eyðileggja umhverfisperluna sem Varmárbakkar eru og ég flutti um innblásna ræðu í Hlégarði 1994 hjá náttúruverndarsamtökum í sveitinni. Nöturlega var að lesa um að oddviti VG hefði hímt bak við gluggatjöld meðan fólkið mótmælti og þorði ekki að láta sjá sig. Er semsagt nóg að rífa kjaft á Alþingi - en leyfa flokknum í meirihlutanum í Mosfellsbæ að fremja hernað gegn landinu?
Eru hervirki VG gegn náttúrunni í Mosfellssveit dæmi um hamskipti flokksins þegar - og ef - hann kemst í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn?
Við þetta bætti ég eftirfarandi texta á sínum tíma
"Já þetta er skemmtileg færsla hjá Össuri og nú er bara að vona og treysta því að undir hans stjórn og Samfylkingarinnar verði ekki unnin önnur eins hervirki gegn náttúru landsins og gert hefur verið í Mosfellsbæ ef hún kemst til valda í komandi kosningum. Ég vona einnig satt að segja að 500 metra vegakaflinn í Mosfellsbæ verði viðmið Össurar og Samfylkingarinnar í umhverfismálum næstu fjögur árin".
Nú segi ég 9. jan 2008, hvað kom á daginn? og langar hér að bæta við hvar eru náttúruverndarsinnar Samfylkingarinnar núna, Árni Páll, Guðmundur Steingríms, Guðríður Arnardóttir svo einhverjir séu nefndir og allt það ágæta fólk sem hafði svo miklar áhyggjur af okkur Mosfellingum vegna umhverfismála og hernaði gegn landinu? Hýmir það jafnvel bak við gardínurnar af skömm?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 9.1.2008
Stóru málin hjá Össuri og Samfylkingunni
Þessa færslu sem lesa má hér að neðan skrifað Össur Skarphéðinsson á heimasíðu sína undir nafninu Hernaður gegn landinu þá voru þrír mánuðir til alþingiskosninga. Það skal ég viðurkenna að ég grét úr hlátri þegar ég las þessa færslu Össurar á sínum tíma enda er hann skemmtilegur penni og örugglega skemmtilegur karl líka.
Hér koma skrif Össurar
Á meðan hinir iðjagrænu vinir okkar í VG að taka á sig til skiptis hami Dr. Jekylls og Mr. Hyde í verndarmálum. Meðan Dr. Jekyll með glampandi skalla ættaðan af Gunnarsstöðum norður berst einsog vitlaus maður fyrir náttúruvernd á Alþingi er hann með Mr. Hyde með umhverfistagl lafandi úr hnakkagrófinni í stóli forseta bæjarstjórnar í Mosfellssveit. Þar hamast Mr. Hyde Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs einsog laminn þræll íhaldsins sem hann situr með í meirihluta í Mosfellsbæ og hafnar á báðar hendur sanngjörnum óskum um umhverfismat á veglagningu um viðkvæmustu svæði sveitarinnar á bökkum Varmár.
Oddviti VG í sveitinni er semsagt orðinn umskiptingur og virðist sérstakt kappsmála að eyðileggja umhverfisperluna sem Varmárbakkar eru og ég flutti um innblásna ræðu í Hlégarði 1994 hjá náttúruverndarsamtökum í sveitinni. Nöturlega var að lesa um að oddviti VG hefði hímt bak við gluggatjöld meðan fólkið mótmælti og þorði ekki að láta sjá sig. Er semsagt nóg að rífa kjaft á Alþingi - en leyfa flokknum í meirihlutanum í Mosfellsbæ að fremja hernað gegn landinu?
Eru hervirki VG gegn náttúrunni í Mosfellssveit dæmi um hamskipti flokksins þegar - og ef - hann kemst í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn?
Við þetta bætti ég eftirfarandi texta á sínum tíma
"Já þetta er skemmtileg færsla hjá Össuri og nú er bara að vona og treysta því að undir hans stjórn og Samfylkingarinnar verði ekki unnin önnur eins hervirki gegn náttúru landsins og gert hefur verið í Mosfellsbæ ef hún kemst til valda og ég vona einnig satt að segja að 500 metra vegakaflinn í Mosfellsbæ verði viðmið Össurar og Samfylkingarinnar í umhverfismálum næstu fjögur árin".
Nú segi ég, hvað kom á daginn?
![]() |
Össur ekki á móti álveri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)