Ótrúlegur snillingur

Fyrir nokkru síðan héldu gömlu félagarnir í Led Zeppelin ógleymanlega tónleika þar sem þeir komu öllum viðstöddum á óvart með frábærum flutningi og spilagleði. Viðstaddir hafa vart haldið vatni yfir þessari uppákomu gömlu meistaranna og sannalega er gaman þegar kombekk tekst svo vel til eins og þarna var raunin.

Rytmasveit Zeppelin sem á sér fáa líka var ekki eins skipuð á þessum tónleikum og á árum áður, að þessu sinni sat við trommurnar Jason Bonham sonur Johns Bonham og þótti honum takast sérlega vel til. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.

Nú eru þeir félagar að hugleiða frekara tónleikahald, ætli þeir bregði undir sig betri fætinum og komi aftur til Íslands?

Ég læt hér fylgja með myndband af John Bonham sem lést langt fyrir aldur fram og er af mörgum talinn besti trommari allra tíma. 

Undiraldan og tónlistin í trommuleik Bonhams á sér engan líkan. Hann var sannkallaður snillingur og hefur ásláttur hans verið mörgum hugleikinn og mikill áhrifavaldur.

Ég stend á þeirri meiningu að Gunnar Jökull sé sá íslenski trommari sem komist næst þessum snillingi, ef ekki jafnfætis. 


Íþróttamenn Mosfellsbæjar

Íþróttamenn MosfellsbæjarÍ dag var hátíðardagur hjá okkur Mosfellingum í Hlégarði þar sem fram fór kjör á íþróttamönnum Mosfellsbæjar. Hafsteinn Pálsson formaður íþrótta-og tómstundanefndar stjórnaði samkomunni. Heiðursgestur var Helga Guðjónsdóttir ný kjörin formaður Ungmennafélags Íslands.

Íþróttamenn Mosfellsbæjar árið 2007

Nína Björk Geirsdóttir golfkona úr Golfklúbbnum Kili og Halldór Guðjónsson hestamaður úr Hestamannafélaginu Herði:

Í umsögn um þau segir m.a.

Halldór er frábær íþróttamaður með mikinn metnað og dugnað í sinni íþrótt. Hann er í fremsta flokki hvar sem hann keppir, auk þess að vera frábær námsmaður sem dúxaði á reiðkennarabraut í Hólaskóla vorið 2007. Árið 2007 var honum sérstaklega afreksríkt þar sem hann náði því m.a. að verða Íslandsmeistari í 250 m skeiði.

Nína hefur verið í golfi í 14 ár og ávallt í Golfklúbbnum Kili. Nína æfir yfir keppnistímabilið að meðaltali 25 tíma í viku. Á veturna æfir hún að meðaltali um 11 tíma á viku. Helsti árangur hennar á árinu var Íslandsmeistari kvenna árið 2007 og Íslandsmeistari í Sveitakeppni kvenna.

Á myndinni má sjá afreksfólkið ásamt Hafsteini Pálssyni formanni Íþrótta- og tómstundarnefndar, Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra og Karli Tómassyni forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.


Bloggfærslur 20. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband